Elbridge Colby, háttsettur embættismaður í bandaríska varnarmálaráðuneytinu, gagnrýndi í gær árásir Úkraínu langt inni í Rússlandi. Volodimír Selenskí forseti hvatti á sama tíma stuðningsríki Úkraínu til að senda loftvarnabúnað án tafar.
„Okkar mat er að þessar árásir hafi hvorki skilað árangri við að binda enda á stríðið né stuðlað að því að hægja á sókn Rússa á víglínunni,“ sagði Colby, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á fundi stuðningsríkja Úkraínu í Brussel.
„Slíkar árásir, einkum þegar þær beinast að borgaralegum innviðum á borð við Wildberries, hafa líklega fremur styrkt baráttuvilja rússnesks almennings og vilja stjórnvalda í Kreml til að herða átökin,“ sagði hann. Þar vísaði hann til rússnesks stórfyrirtækis í netverslun sem Úkraína hefur beint árás að.
Colby sagði að stuðningur við Úkraínu ætti að beinast að því að styrkja víglínuna, þar sem Úkraínumönnum hefur jafnvel tekist að hrekja Rússa til baka á sumum svæðum, og að árásum á birgðaleiðir Rússa …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir