Um borð í einni síðustu rútunni til Rússlands

Eistland lokar landamæra­stöðvum sínum að Rússlandi frá 1. desember í að minnsta kosti sex mánuði. Með því trosna tengsl.

Kveðjustund
Kveðju­stund Farþegi í rútu frá Tallinn til Sankti Pét­urs­borgar veifar til ást­vinar tveimur dögum áður en Eistland lokar landamæra­stöðvum sínum að Rúss­landi. Mynd: WOJTEK RADWANSKI / AFP

Þunnt snjólag huldi auð stæðin á rútu­stöðinni í Tallinn í Eistlandi. Farþegar biðu í kaldri nóttinni eftir að komast um borð í eina síðustu rútuna sem fer beint til Rússlands.

Í röðinni stóð Svetlana Persson, 58 ára, og bjó sig undir langt ferðalag með rútu sem átti að leggja af stað til Sankti Péturs­borgar klukkan 1.15 um nóttina.

Hún yrði meðal þeirra síðustu sem færu yfir landamæri Eistlands og Rússlands áður en eistnesk stjórn­völd loka landamæra­stöðvunum í að minnsta kosti sex mánuði frá 1. desember.

Eistland er Eystrasalts­ríki með 1,3 milljónir íbúa og á aðild að Atlantshafs­bandalaginu og Evrópu­sambandinu. Stjórn­völd ákváðu lokunina vegna þess sem þau kalla ítrekaðar tilraunir Rússa til að skipuleggja skemmdar­verk í Eistlandi, sem styður Úkraínu af einurð í innrásar­stríði Rússa.

Rússnesk stjórn­völd hafna ásökununum.

Með lokuninni hverfur ein síðasta opna leiðin yfir landamæri Rússlands og Evrópu­sambandsins. Hún er mikilvæg fyrir Rússa búsetta erlendis og fólk sem á fjöl­skyldu hinum megin við landa­mærin.

Persson flutti til Svíþjóðar fyrir 16 árum, en sonur hennar og aldraða móðir urðu eftir í Sankti Péturs­borg.

„Móðir mín verður 96 ára. Auðvitað bíður hún mín og er glöð og ánægð. Engin vinna og engir peningar jafnast á við að hitta fjöl­skyldu sína og ástvini,“ sagði hún við AFP í Tallinn.

Persson óttaðist að „þetta gæti verið í síðasta sinn“ sem hún heimsækti móður sína.

Við landamærin
Við landa­mærinFánar Evr­ópu­sam­bands­ins, Eist­lands og Atl­ants­hafs­banda­lags­ins við landamæra­stöð­ina í Narva við Ivangorod í Rúss­landi. Eistland lokar landamæra­stöðvum sínum að Rúss­landi frá 1. des­em­ber. Frá árinu 2024 hafa aðeins gang­andi veg­far­endur mátt fara þar yfir landa­mærin.

„Pólitísk“ ákvörðun

Ferð Persson hófst klukkan sex í gærmorgun, þegar hún flaug til Eistlands með viðkomu í Finnlandi.

Frá því að Finnland lokaði landa­mærum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár