Rithöfundur getur ekkert gert nema skera niður kvöldmatinn

Rithöf­und­urinn Eiríkur Örn Norðdahl hefur fyrir löngu sýnt fram á bókmennta­lega sérstöðu. Slegið í gegn á alþjóð­legum vettvangi, tvívegis verið tilnefndur til Bókmennta­verðlauna Norður­landaráðs og hlotið tilnefningar til tveggja virtustu bókmennta­verðlauna Frakka. Samt þarf hann að fást við sama ómögulega veruleika og flestir aðrir rithöfundar.

Eiríkur Örn
Eiríkur Örn „Þessi mán­að­ar­legu starfs­laun, upp­hæðin sem þau nema, er ekki neitt neitt, eitt­hvað um 75 pró­sent af lág­marks­launum. Og það eru full lista­manna­laun, sem fæstir fá,“ segir rit­höf­und­ur­inn. Mynd: Baldur Pan

„Þetta er óþolandi staða fyrir full­orðinn mann sem telur sig hafa náð ágætis árangri í starfi og fær mann til að sakna þess sem er til dæmis víða á Norður­löndunum, að það sé í boði að fá laun til lengri tíma, bæði betri laun og ekki síður tryggari tekjur. Að í einhverjum tilvikum sé fólk komið inn fyrir þröskuldinn og þurfi ekki að hafa áhyggjur af fram­færslu sinni ár eftir ár,“ segir Eiríkur Örn þegar hringt er í hann til Ísafjarðar.

Sér ekki fyrir endann á þessu

„Þessi mánaðar­legu starfs­laun, upphæðin sem þau nema, er ekki neitt, neitt, eitthvað um 75 prósent af lágmarks­launum. Og það eru full listamanna­laun, sem fæstir fá. Síðan er hugmyndin sú að maður bæti þau upp með öðrum tekjum, selji bækur, lesi upp, nái upp í lágmarks­laun og kannski eitthvað aðeins meira, svo maður ráði líka við að greiða tómstundir barnanna og komist …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár