1. Í grunnstefnu Viðreisnar eru boðuð hallalaus fjárlög. Þú hefur sagt að þú vildir fremur gæta aðhalds en hækka skatta. Hvaða kostnað ríkisins hefðir þú viljað skera niður til að ná hallalausum fjárlögum án tekjuaukningar?
„Ég hef alltaf stutt markmiðið um hallalaus fjárlög og um það hefur verið víðtæk samstaða á Alþingi. Leiðin að því markmiði skiptir hins vegar öllu máli. Það var ekki í kosningastefnu Viðreisnar að loka fjárlagagatinu með því að til dæmis hækka kílómetragjaldið um 16%, færa baðlón í efra þrep virðisaukaskatts, þvert á gefin loforð, né lá fyrir í kosningastefnu Viðreisnar sú útfærsla á náttúru- og innviðagjaldi sem boðuð er, sem lögfræðingar hafa raunar dregið í efa að standist EES-samninginn, sem er svo sannarlega stefna Viðreisnar að standa vörð um.
Ég hefði viljað sjá mun meira aðhald á útgjaldahliðinni. Þar eru ýmis tækifæri. Til dæmis tel ég rétt að endurskoða sjálfvirka tengingu almannatrygginga við …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





























Athugasemdir