Vísbendingar um yfirvofandi brotthvarf Ingvars Þóroddssonar frá Viðreisn birtust þegar hann vék úr fjárlaganefnd seint í október, að því er hann sagði vegna vinnuálags.
Brotthvarf Ingvars úr fjárlaganefnd var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Þjóðmálum hjá fjölmiðlamönnum sem eru meðlimir í Sjálfstæðisflokknum. Þar gaf Stefán Einar Stefánsson, þáttarstjórnandi í Spursmálum á mbl.is og fastagestur í Þjóðmálum, innsýn inn í stöðuna.
„Ástæða þess að honum er kippt út úr fjárlaganefndinni er augljóslega sú að hann treystir sér ekki til þess að styðja fjárlögin eins og þau eru teiknuð upp. Ingvar er bara maður sem er frjálslyndur hægrimaður sem ætlaði sér ekki að kaffæra hér atvinnulífið í sköttum. Og hann finnur það vel í sinni heimabyggð með öll baðlónin þar, hugsið ykkur, Skógarböðin, Vök, Jarðböðin á Mývatni sem er nýbúið að sturta átta milljörðum í. Hann getur ekkert bakkað þetta upp. Þau eru að kippa honum út úr fjárlaganefndinni vegna þess …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
























Athugasemdir (1)