Frestur Carbfix til að tryggja 17 milljarða styrk rennur út í desember

Samkvæmt svörum ESB rennur frestur fyrir styrk til nið­ur­dæl­ingar út í lok des­em­ber. Átta var sagt upp í dag hjá Carbfix og fjórir til við­bótar færðir til Orku­veit­unnar.

Carbfix
Carbfix Carbfix er í nokkrum vanda sam­kvæmt fréttum. Mynd: Golli

Sautján millj­arða króna styrkur Evr­ópu­sam­bands­ins til Carbfix verður að öllum lík­indum ekki veittur fyr­ir­tæk­inu sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar. Eru þá öll áform fyr­ir­tæk­is­ins um að byggja stórar nið­ur­dæl­ing­ar­stöðvar á koltví­sýr­ingi á Íslandi nán­ast úr sög­unni.

Carbfix, dótt­ur­fé­lag Orku­veitu Reykja­víkur, til­kynnti í dag upp­sagnir átta starfs­manna og að fjórir starfs­menn yrðu færðir í störf hjá Orku­veit­unni. Ákveðið var að ráð­ast í nið­ur­skurð hjá Carbfix, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar, þegar staða styrks­ins skýrð­ist á haust­mán­uðum og ljóst var að það væri ólík­legt að Carbfix næði að upp­fylla skil­yrði styrks­ins.

Fyr­ir­tækið ætl­aði sér stóra hluti á Íslandi og sagði Sævar Freyr Þrá­ins­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, að fyr­ir­tækið gæti skilað allt að 1.400 millj­örðum króna í þjóð­ar­búið, í við­tali við Bítið á Bylgj­unni í jan­úar 2025.

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík vill núna selja fyr­ir­tækið, en umræður um söl­una áttu sér stað í borg­ar­stjórn í dag.

Klukkan tifar

Evr­ópu­sam­bandið veitti Carbfix sautján …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Carbfix-málið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár