Hugmyndin um Coda Terminal „ekki praktísk eins og er“

Ari Edwald, stjórn­ar­for­maður Orku­veit­unnar, segir að það sé ekki hag­nýt hug­mynd að ráð­ast í inn­flutn­ing á CO2 eins og staðan sé núna. Hann segir að mögu­lega hafi það verið önnur stærstu mis­tök í rekstri borg­ar­innar að selja ekki Carbfix þegar það var hægt.

Önnur stærstu mistökin
Önnur stærstu mis­tökin Stjórn­ar­for­maður Orku­veit­unnar segir að ekki verði ráð­ist í Coda Terminal. Mynd: Golli

Ari Edwald, odd­viti Mið­flokks­ins og for­maður stjórnar Orku­veitu Reykja­víkur, segir það ekki „praktíska hug­mynd“ að ráð­ast í stór verk­efni eins og Coda Terminal-verk­efni Carbfix eins og staðan sé nú.

Það þýðir að sautján millj­arða styrkur, sem var eyrn­ar­merktur verk­efn­inu, verður ekki greiddur til Carbfix fyrir ára­mót. Fyr­ir­tækið var með áætl­anir um að flytja inn millj­ónir tonna af koltví­sýr­ingi til lands­ins og farga í stöð­inni. Frest­ur­inn til þess að upp­fylla kröf­urnar fyrir styrk­veit­ing­unni rennur út á næstu vikum.

Enn fremur veltir Ari fyrir sér hvort önnur stærstu hag­stjórn­ar­mis­tök Reykja­vík­ur­borgar hafi verið að selja ekki Carbfix þegar fjár­festar höfðu áhuga á félag­inu. Þetta kom fram í umræðum í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar í gær þar sem meðal ann­ars var rætt um sölu Carbfix.

„Menn sáu fyrir sér annað við­skipta­módel í kringum Carbfix heldur en núna er talið raun­hæft, þá var mik­ill áhugi á að kaupa fyr­ir­tækið fyrir háar fjár­hæðir og jafn­vel …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár