Ingvar segir skilið við Viðreisn

Ingvar Þór­odds­son gengur til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og kvarn­ast enn úr þing­liði stjórn­ar­flokk­anna. Ágrein­ingur um skatta, rík­is­fjár­mál og sam­göngur á lands­byggð­inni réð úrslitum um ákvörðun hans. Ingvar segir það hafa verið mis­tök að sam­þykkja sam­göngu­á­ætlun án Fjarð­ar­heið­ar­ganga og biður Aust­firð­inga afsök­unar.

Skiptir um flokk
Skiptir um flokk Ingvar Þór­odds­son hefur sagt skilið við Viðreisn og gengið til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Mynd: Viðreisn/Sindri Swan

Ingvar Þór­odds­son, þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis, hefur sagt skilið við Viðreisn og ákveðið að ganga til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann styður ekki lengur rík­is­stjórn­ina.

Rúmur mán­uður er síðan annar þing­maður flokks­ins, Jón Gnarr, sagði sig úr þing­flokki Við­reisnar. Ólíkt Ingvari ákvað Jón að styðja rík­is­stjórn­ina áfram.

„Viðreisn hét því að hækka ekki skatta“
Ingvar Þór­odds­son
þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis

Í yfir­lýs­ingu á Facebook segir Ingvar að stefna rík­is­stjórn­ar­innar gangi gegn þeirri sann­fær­ingu sem hann bauð sig fram með í síð­ustu kosn­ingum og lýsir því yfir að rík­is­stjórnin njóti ekki lengur stuðn­ings hans.

Ingvar gagn­rýnir einkum skatta­hækk­anir rík­is­stjórn­ar­innar, stefnu hennar í rík­is­fjár­málum og for­gangs­röðun í sam­göngu­málum á lands­byggð­inni. Hann segir fjár­laga­frum­varpið fyrir árið 2027 hafa gert sér ljóst að hann og rík­is­stjórnin ættu ekki lengur sam­leið.

„Viðreisn hét því að hækka ekki skatta,“ segir Ingvar og bendir meðal ann­ars á fyr­ir­hug­aða hækkun virð­is­auka­skatts á bað­lón, breyt­ingar á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár