Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8 prósentum. Ákvörðunin var einróma. Verðbólga hefur aukist frá því í sumar en Seðlabankinn telur að hægari vöxtur efnahagslífsins og minnkandi eftirspurn muni stuðla að því að hún hjaðni á næsta ári.
Verðbólga mældist 5,9 prósent í október og hefur aukist undanfarna mánuði, meðal annars vegna hás eldsneytisverðs á alþjóðamörkuðum. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist nokkuð stöðug, í liðlega 4 prósentum, samkvæmt yfirlýsingu peningastefnunefndar.
Þótt verðbólga sé enn langt yfir 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans telur nefndin að horfur séu á að hún hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári. Þar vegur þungt að hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar og hagvaxtarhorfur hafa versnað.
Í nýrri þjóðhagsspá bankans er áfram gert ráð fyrir að verðbólga minnki á næsta ári, líkt og í síðustu spá sem birt var í ágúst. Þá bendir Seðlabankinn á að áhrif hækkandi eldsneytisverðs …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir