Þýskaland, Danmörk, Austurríki, Grikkland og Holland kynntu í dag áætlun um að koma á fót miðstöð í Rúanda fyrir flóttafólk. Hún yrði fyrsta miðstöð sinnar tegundar utan Evrópusambandsins.
Ríkin fimm hafa stigið skref í átt þess að opna svonefnda „endurkomumiðstöð“ fyrir fólk sem hefur fengið umsókn um dvalarleyfi synjað, eftir að ESB ruddi brautina með hertum reglum um fólksflutninga.
Áformin voru kynnt þrátt fyrir mótmæli mannréttindasamtaka og viðvörun Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur einnig lýst efasemdum.
„Ef ekki er hægt að senda fólk aftur til heimalands síns verður í framtíðinni hægt að senda þá sem hafa ekki dvalarrétt til þriðja ríkis á borð við Rúanda,“ sagði Christian Stocker, kanslari Austurríkis, eftir fund ríkjanna fimm í Vín.
„Ég fagna því að okkur hefur í dag tekist að ná fram sannkölluðum sögulegum straumhvörfum í stefnu í málefnum fólksflutninga,“ sagði Stocker.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir