Aðalsteinn Kjartansson hefur verið ráðinn ritstjóri Heimildarinnar af stjórn Sameinaða útgáfufélagsins. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir fer í tólf mánaða veikindaleyfi.
Aðalsteinn hóf störf í blaðamennsku árið 2010 og hefur unnið við skrif, útvarp og sjónvarp. Hann hefur einnig tekið þátt í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum með erlendum miðlum. Hann var í hópi blaðamanna sem unnu að umfjölluninni um Panama-skjölin. Sú umfjöllun hlaut Pulitzer-verðlaunin árið 2017 en dómnefndin hrósaði verkefninu fyrir samstarf meira en 300 blaðamanna í sex heimsálfum.
Hann var einnig í hópi þeirra blaðamanna sem afhjúpuðu Samherjamálið í Namibíu og „skæruliðadeild“ Samherja. Meðal annarra mála sem hann hefur fjallað um er hvernig bílaleigan Procar breytti kílómetrastöðu bíla fyrir sölu og viðskipti Eimskips við alræmda milliliði við förgun gámaskipa. Bæði mál urðu kveikjan að sakamálarannsóknum hér á landi. Umfjöllun Aðalsteins og Helga Seljan um snjóflóðið í Súðavík árið 1995 varð svo til þess að Alþingi skipaði rannsóknarnefnd um málið.
Aðalsteinn hefur starfað á Heimildinni frá stofnun en áður starfaði hann meðal annars á Stundinni, RÚV og Reykjavík Media. Hann hlaut verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2019 fyrir umfjöllun um Samherjamálið og Blaðamannaverðlaun ársins 2021, auk þess sem hann hefur fengið fjölda tilnefninga til sömu verðlauna auk alþjóðlegra verðlauna.
Elín G. Ragnarsdóttir, stjórnarformaður Sameinaða útgáfufélagsins, segir stjórnina bjóða Aðalstein velkominn til starfa í nýju hlutverki.
„Við óskum Aðalsteini innilega til hamingju með ráðninguna. Við berum fullt traust til hans og hlökkum til samstarfsins um áframhaldandi uppbyggingu Heimildarinnar. Öflug og sjálfstæð blaðamennska á brýnt erindi og við erum sannfærð um að Aðalsteinn muni leiða ritstjórnina af metnaði og festu. Um leið sendum við Ingibjörgu hlýjar kveðjur og óskum henni góðs bata.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir