Það er skýjaður haustdagur á Dynjandisheiði. September er í þann mund að hleypa október að og gróðurinn er farinn að undirbúa sig fyrir kaldari tíma. Ægifagrir gulir, rauðir og appelsínugulir litir taka við af gráum skýjum þegar við keyrum niður í Dynjandisvog og Gyrðisfoss og Dynjandi sýna krafta sína sem hafa magnast með aðstoð rigningarinnar síðustu daga. Í vegkantinum er svartur jeppi Náttúrustofu Vestfjarða lagður. Inni í bílnum sitja þrír vísindamenn í litríkum pollagöllum í hádegispásu að borða nesti. Þau eru á músaveiðum.

Á Íslandi er að finna tvær músategundir: hagamús og húsamús. Hagamúsin er eina nagdýrategundin sem lifir villt í íslenskri náttúru. „Hún heitir Apodemus sylvaticus á latínu, sem þýðir í raun að hún sé skógarmús fremur en hagamús,“ útskýrir Christopher Long, vistfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða, en latneska orðið sylvaticus …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
























Athugasemdir