„Mér finnst lykillinn að því að vera með bókasafn sem býður krakkana velkomna vera að hafa safnið ævintýralegt og lifandi. Að það sé pláss fyrir alla og að hér finni allir lesefni við hæfi,“ segir Sif Heiða þegar blaðamaður sest niður með henni á safninu sem er eins litríkt og það er fallegt. Þá segist hún efna til spennandi uppákoma á safninu sem hvetji til lesturs og líka samveru. Þannig upplifa nemendur safnið sem girnilegan stað sem kallar á þau.
Í sumar sem leið þurfti aðeins að breyta safninu þar sem verið var að endurnýja þakið og hinn listræni safnstjóri fór skapandi höndum um það. „Krakkarnir eru einstaklega hamingjusamir með breytinguna sem átti sér stað. Mikið af vái heyrist hér. Þeim finnst aðgengið vera svo gott, enda er safnið náttúrlega staðsett í hjarta skólans. Það er svo skemmtilegt að þegar skólinn var teiknaður á sínum tíma var bókasafnið sett …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.























Athugasemdir