Anthropic-útboðið dugði ekki til að róa markaðina

Hluta­bréfa­mark­aðir lækk­uðu í Banda­ríkj­unum, Evrópu og Asíu þrátt fyrir góða byrjun Anthropic á Nasdaq. Fjár­festar hafa áhyggjur af því hvort mikil fjár­fest­ing í gervi­greind skili sér og bregð­ast jafn­framt við fyr­ir­hug­uðum hömlum á aðgang kín­verskra fyr­ir­tækja að örgjörvum.

Á markaði
Á mark­aði Hluta­bréf tækni­fyr­ir­tækja lækk­uðu þrátt fyrir góða byrjun Anthropic á Nasdaq. Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Hluta­bréf tækni­fyr­ir­tækja féllu hratt í dag og drógu hluta­bréfa­mark­aði víða um heim niður. Sterk inn­koma gervi­greind­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Anthropic á hluta­bréfa­markað dugði ekki til að slá á vax­andi áhyggjur af gríð­ar­legum fjár­fest­ingum í grein­inni og háu verð­mati fyr­ir­tækja.

Hluta­bréf í Anthropic hækk­uðu um hríð úr útboðs­geng­inu 83 doll­urum, eða um 10.400 krónum, í yfir 110 doll­ara, eða rúm­lega 13.700 krónur, eftir góða byrjun í gær. Þau lækk­uðu hins vegar í almennri sölu­hr­inu í dag og fóru niður fyrir 90 doll­ara, eða um 11.200 krónur.

„Þróun hluta­bréfa­verðs­ins á næstu dögum og vikum gæti orðið ein skýrasta vís­bend­ingin hingað til um hvort fjár­festar telji að þær gríð­ar­legu fjár­hæðir sem renna til gervi­greindar muni á end­anum skila góðri ávöxtun,“ segir Dan Coatsworth, yfir­maður mark­aðs­mála hjá AJ Bell.

Þótt hluta­bréf Anthropic hafi hækkað mikið þegar við­skipti með þau hófust á Nasdaq átti tækni­vísi­talan í erf­ið­leikum það sem eftir lifði dags. Hún opn­aði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár