Rússar hafa boðið evrópskum embættismönnum til Moskvu til að ræða hvort þeir eigi að taka þátt í viðræðum undir forystu Bandaríkjanna um að binda enda á stríðið í Úkraínu, sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í dag.
„Bandaríkjamenn hvetja okkur til að samþykkja þátttöku Evrópumanna ... Við lögðum til eftir diplómatískum leiðum að Evrópumenn kæmu til Moskvu. Að því loknu ákveðum við með hvaða hætti viðræðurnar geta haldið áfram,“ sagði Pútín á blaðamannafundi í Kína.
„Við skiljum að tilgangslaust er að ræða mál sem varða öryggi í Evrópu án Evrópumanna,“ bætti hann við.
Pútín sagði þó að stjórn hans gæti ekki fallist á nein hernaðarleg tengsl milli Úkraínu og Evrópu sem hluta af samkomulagi um að binda enda á stríðið.
„Hernaðarsamstarf í hvaða mynd sem er er að sjálfsögðu vandamál,“ sagði Pútín við fréttamenn á blaðamannafundi eftir leiðtogafund sinn með forsetunum.
Pútín sagðist hafa átt …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir