Ísraelski herinn tilkynnti í morgun að hann hefði hafið hernaðaraðgerð á svæði undir stjórn Hamas á miðhluta Gasasvæðisins. Blaðamaður AFP sá ísraelska skriðdreka taka sér stöðu austan við Nuseirat-flóttamannabúðirnar.
Landhernaðaraðgerðin er óvenjuleg og kemur í kjölfar kosninga í Ísrael sem skiluðu ekki skýrri niðurstöðu.
Gadi Eisenkot, úr röðum stjórnarandstöðunnar, reynir nú að mynda ríkisstjórn án Benjamins Netanyahu, sem gegnir embætti forsætisráðherra til bráðabirgða. Netanyahu hefur byggt pólitískan feril sinn að verulegu leyti á loforðum um að tryggja öryggi Ísraels.
Heimildarmaður innan öryggiskerfisins á Gaza sagði AFP að ísraelski herinn hefði gert „harðar stórskotaliðsárásir“ norðan við Nuseirat-flóttamannabúðirnar. Hann sagði jafnframt að farartæki ísraelska hersins væru á miðhluta Gasasvæðisins, þar sem skothríð og loftárásir hefðu staðið yfir frá hádegi.
Ísraelski herinn sagði í yfirlýsingu að hann hefði „fyrr í dag hafið markvissa aðgerð á Gasasvæðinu, vestan við gulu línuna [...] til að ryðja úr vegi ógn við …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir