Flestar safnanir tilkynntar of seint

Sema Erla er fyrir dómi vegna ákæru um að hafa ekki tilkynnt fjár­söfnun fyrirfram. Sýslu­maður stað­festir að flestar safnanir eru tilkynntar of seint.

Fyrir dómi
Fyrir dómi Sema Erla Serdaroglu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Hún svarar þar til saka vegna ákæru um að hafa til­kynnt fjár­söfnun sam­tak­anna Solaris of seint. Mynd: Golli

Aðeins sex af 13 fjár­söfnunum sem tilkynntar hafa verið til embættis Sýslu­mannsins á Suður­landi síðustu fimm árin voru tilkynntar á réttum tíma, áður en söfnun hæfist.

Ákært hefur verið fyrir eitt tilfelli og fór Sema Erla Serdaroglu, forsvars­kona samtak­anna Solaris sem söfnuðu í það skipti fyrir björgun palestínskra fjöl­skyldna með íslenskt dvalar­leyfi frá Gasa­svæðinu, fyrir Héraðsdóm Reykja­víkur í dag til að svara til saka vegna of seinnar tilkynningar. Solaris safnaði rúmlega 93 milljónum króna frá febrúar 2024 til að bjarga hátt í 200 manns frá Gaza, en söfnunin var aðeins tilkynnt til sýslu­manns í september sama ár, samhliða ítarlegu uppgjöri.

„Það hafa 13 opinberar fjár­safnanir verið tilkynntar til embættisins á síðustu fimm árum,“ segir Anna Lilja Ragnars­dóttir, settur sýslu­maður á Suður­landi, í svari til Heimildarinnar. „Sjö tilkynningar bárust eftir að söfnun hófst.“

Samkvæmt svarinu er embættinu „ekki kunnugt“ um að ákært hafi verið í öðrum tilfellum fyrir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið undanfarið ár