Samningur um loftslagsaðgerðir gufaði upp

COP31 lauk án sam­komu­lags eftir að olíu­fram­leiðslu­ríki komu í veg fyrir að loka­text­inn fjall­aði um að hætta notkun jarð­efna­elds­neytis í áföngum.

Ráðstefnu slitið
Ráð­stefnu slitið Murat Kurum, for­seti COP31 og umhverf­is­ráð­herra Tyrk­lands, á fundi ráð­stefn­unnar í Antalya. Henni lauk án heild­ræns sam­komu­lags. Mynd: YASIN AKGUL / AFP

Talsmenn lofts­lags­að­gerða brugð­ust í dag ókvæða við því að COP31-ráð­stefn­unni lauk án nið­ur­stöðu. Viðræður um jarð­efna­elds­neyti sigldu í strand eftir að ráð­stefnan í Tyrk­landi hafði staðið lengur en nokkur önnur lofts­lags­ráð­stefna.

Loka­samn­ingnum var hafnað í gær við óreiðu­kennd lok lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem stóð tveimur dögum lengur en áætlað var. Nið­ur­staðan und­ir­strik­aði hversu erf­iðar alþjóð­legar samn­inga­við­ræður eru orðnar í sífellt sundraðri heimi.

Antonio Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, lýsti miklum von­brigðum. Í hvassri ræðu á ráð­stefn­unni hafði hann hvatt ríki til að láta jarð­efna­elds­neyti „fara sömu leið og risa­eðl­urnar“.

„Ég deili djúp­stæðum von­brigðum allra þeirra sem væntu þess að rík­is­stjórnir stæðu undir þeim kröfum sem lofts­lags­váin gerir,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn, sem er á förum, í yfir­lýs­ingu.

Chris Bowen, sem stýrði samn­inga­við­ræðum á COP31, reyndi án árang­urs að ná sam­stöðu meðal nærri 200 ríkja. Hann við­ur­kenndi að ekki hefði tek­ist að yfir­stíga það sem hann kall­aði „ósam­rým­an­legar kröfur“.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár