Í viðtali á Vísi fyrir nokkru var Halldór kynntur til leiks sem helsti mafíósi bókabransans hér á landi. En hvað er átt við með því? „Ég tók því nú sem gamansemi. Sannarlega höfðum við hjá Mál og menningu um tíma mikil völd í íslenskri bókaútgáfu, og margt gerðum við líka vitlaust, en við misnotuðum þau ekki til að skara eld að eigin köku og safna auði, eins og ég held nú að flest mafíustarfsemi gangi út á.“
Kannski var óbeint verið að vísa til þess að Halldór hefur alla tíð verið maður tveggja heima. Íslands og Þýsklands, í einhverjum skilningi Íslands og Evrópu, og þannig búið yfir ákveðinni sérstöðu.
Saga íslenskrar frásagnargleði í rituðu máli er sögð í nýrri bók hans, sögu bókmennta á Íslandi í þúsund ár, Líf í bókum. Áður hafði hann sjálfur ritað þessa miklu sögu á þýsku og gefið út í Þýskalandi undir …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.























Athugasemdir