Viðræður á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, stóðu lengur en til stóð í dag. Fulltrúar ríkja deildu um samningsdrög þar sem hvergi var minnst á jarðefnaeldsneyti. Ágreiningur um fjölda annarra mála tafði viðræðurnar einnig.
Grár himinn ýtti undir drungalegt andrúmsloft í Antalya á Miðjarðarhafsströnd Tyrklands. Þar reyndu samningamenn nærri 200 ríkja að ná saman eftir tveggja vikna strangar viðræður.
„Eins og staðan er núna er enginn ánægður,“ sagði Aloisio Lopes Pereira de Melo, sem fer fyrir loftslagsmálum í brasilísku stjórnsýslunni, við fréttamenn.
Í aðdraganda ráðstefnunnar hafa hitabylgjur í Evrópu, mannskæð flóð í Nepal og fleiri atburðir minnt rækilega á hversu brýnt er að bregðast við loftslagsbreytingum.
Þó hafa litlar væntingar verið um verulegan árangur á COP31. Ríkin glíma við skyndilega hækkun olíuverðs og spennu í alþjóðamálum vegna stríðsins í Íran.
Í umfangsmiklum samningsdrögum sem birtust fyrr í vikunni var eindregið hvatt til þess að hraðar …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir