Svæði

Tyrkland

Greinar

Réttarhöld hafin í einu stærsta hneykslismáli læknavísindanna sem teygir sig til Íslands
FréttirPlastbarkamálið

Rétt­ar­höld hafin í einu stærsta hneyksl­is­máli lækna­vís­ind­anna sem teygir sig til Íslands

Rétt­ar­höld yfir Paulo Macchiarini, ítalska skurð­lækn­inum sem græddi plast­barka í þrjá sjúk­linga á Karol­inska-sjúkra­hús­inu í Svíþjóð eru hafin þar í landi. Tómas Guð­bjarts­son brjóst­hols­skurð­læknir er vitni ákæru­valds­ins í mál­inu og á að segja frá blekk­ingum Macchiarinis. Plast­barka­málið teng­ist Íslandi með margs konar hætti.
„Ég er ekki hrædd lengur“
ViðtalFlóttamenn

„Ég er ekki hrædd lengur“

Sara Mardini og systir hennar björg­uðu lífi 18 manns þegar þær stukku út í Mið­jarð­ar­hafið og drógu bát fullan af hæl­is­leit­endum í þrjá og hálfan tíma að landi. Sara flúði átök í heima­landi sínu, Sýrlandi, en á núna yfir höfði sér 25 ára fang­elsi verði hún sak­felld af grískum dóm­stól fyrir þátt­töku sína í hjálp­ar­starfi á sama svæði og hún sjálf lenti í sjáv­ar­háska.
Verður daglega fyrir morðhótunum á netinu
Fréttir

Verður dag­lega fyrir morð­hót­unum á net­inu

Ung íslensk kona slapp naum­lega undan manni sem réðst að henni á götu úti um hábjartan dag í Istanbúl fyrir nokkrum vikum. Maðurinn var vopn­aður hnífi. Konan, sem er fædd í Sómalíu, er sam­fé­lag­miðla­stjarna þar og birtir mynd­bönd og fyr­ir­lestra undir heit­inu MID SHOW. Hún verður dag­lega fyrir morð­hót­unum á sam­fé­lags­miðlum vegna bar­áttu sinnar fyrir rétt­læti til handa stúlkum og konum í fæð­ing­ar­landi hennar og víðar.
Rýtingur í bak Kúrda leiðir til lokauppgjörs í Sýrlandi
GreiningStríðið í Sýrlandi

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til loka­upp­gjörs í Sýrlandi

Banda­ríkja­stjórn sveik sína nán­ustu banda­menn gegn ISIS á dög­unum með því að gefa Tyrkjum skot­leyfi á varn­ar­sveitir Kúrda í Sýrlandi. Erdoğan Tyrk­lands­for­seti er hins vegar kom­inn í stór­kost­leg vand­ræði og inn­rás hans er í upp­námi eftir að Kúrdar ventu kvæði sínu í kross og gerðu banda­lag við Rússa og sýr­lenska stjórn­ar­her­inn. Um leið og Banda­ríkja­her er að hverfa á brott frá land­inu virð­ist allt stefna í loka­upp­gjör í borg­ara­stríð­inu sem hefur geisað í átta ár.
Gagnrýni á innrás Tyrkja jafngildir hryðjuverkum
Greining

Gagnrýni á inn­rás Tyrkja jafn­gildir hryðju­verkum

Banda­lags­ríki Íslend­inga í Nató hótar að láta 3,6 millj­ónir hæl­is­leit­enda „flæða“ yfir Evrópu ef árás Tyrkja á Sýrland verður skil­greind sem inn­rás. Stjórn­ar­her Sýrlands, studdur af Írönum og Rússum, stefnir í átt að tyrk­neskum her­sveitum. Gagnrýni á inn­rás­ina hefur verið gerð refsi­verð og tyrk­neska lands­liðið í knatt­spyrnu tekur afstöðu með inn­rásinni.

Mest lesið undanfarið ár