„Súrrealískt“ að Ísland sé í hernaðarbandalagi með landi sem fremji „svona ógeðisverk“

Lenya Rún Taha Karim segir það súr­r­eal­ískt að Ísland sé í hern­að­ar­banda­lagi með landi sem fremur „ógeðis­verk“ eins og þau sem Tyrkir eru sak­aðir um að hafa framið í Kúr­distan þar sem átta almennir borg­arar lét­ust í loft­árás í gær.

Fjölmargir hafa fordæmt árásina og meðal þeirra er Lenya Rún Taha Karim alþingismaður.
Fjöl­margir hafa for­dæmt árás­ina og meðal þeirra er Lenya Rún Taha Karim alþing­is­maður. Mynd: Bára Huld Beck

Allt var með kyrrum kjörum í ferða­manna­bænum Barakh í Kúr­distan, sjálf­stjórn­ar­hérðai Kúrda í Írak, sem liggur skammt frá landa­mærum Tyrk­lands í norð­ur­hluta lands­ins, þegar loft­árás var háð með þeim afleið­ingum að átta almennir borg­arar lét­ust og minnst 28 slös­uð­ust. Ferða­manna­bær­inn er stað­settur í fjöll­unum í Kúr­distan, þar sem einnig halda til liðs­menn Kúrdíska verka­manna­flokks­ins, sem eru á lista Tyrkja, Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins yfir hryðju­verka­sam­tök.

Tyrkir hafa um langt skeið háð stríð gegn Kúrdíska verka­manna­flokknum, en aldrei áður hefur slíkt mann­fall orðið á meðal almennra borg­ara. Barakh var stút­fullur af ferða­mönnum sem leitað höfðu upp til fjalla til að flýja 50 stiga hita sem víða hefur mælst í Írak und­an­farna daga.

Fjöl­margir hafa for­dæmt árás­ina og meðal þeirra er Lenya Rún Taha Karim alþing­is­maður, en í færslu á Twitter gagn­rýnir hún að Ísland sé í hern­að­ar­banda­lagi með landi sem fremji slík ógeðis­verk. Einnig segir hún súr­r­eal­ískt að vera hluta af þingi sem ekki hafi tekið neina sterka afstöðu gegn því „banda­menn“ Íslands geri öðrum þjóðum, til dæmis Kúrdum, en Lenya er sjálf af kúrdískum upp­runa. Þá bendir hún á að Banda­ríkin hafi for­dæmt árás­ina og að Ísland hljóti að geta gert það sama „fyrst við lítum svona mikið upp til þeirra“.

Ábyrgð vísað á bug

Þess skal þó getið að í þeirri yfir­lýs­ingu sem Lenya Rún vísar til, frá sendi­herra Banda­ríkj­anna gagn­vart Írak, eru Tyrkir ekki sér­stak­lega nefndir, en yfir­völd í Tyrk­landi hafa vísað ábyrgð á árásinni á bug og sagt hryðju­verka­sam­tök hljóta að bera á henni ábyrgð, og önnur lönd og alþjóða­sam­tök á borð við Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa for­dæmt árás­ina án þess að nefna Tyrkland sér­stak­lega á nafn.

Stjórn­völd í Írak eru þess þó full­viss að um tyrk­neska árás hafi verið að ræða. Tyrkir hafi ítrekað farið yfir strikið í árásum sínum innan land­svæða Kúr­distan og árásin sé alvar­legt brot gegn landamæra­helgi og full­veldi Íraks og Írak telji sig í fullum rétti til þess að bregð­ast við árásinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár