Vera Sveinbjörnsdóttir var valin úr hópi fimmtán umsækjenda sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar. Hún hefur undanfarin fjögur ár verið framkvæmdastjóri Myndstefs, Myndhöfundasamtaka Íslands, en starfaði áður um langt árabil í Stjórnarráðinu, meðal annars að fjarskiptamálum, upplýsingatækni og netöryggi.
Vera hefur um átján ára reynslu af opinberri stjórnsýslu, lögfræðistörfum, stjórnun og stefnumótun.
Meðal annarra umsækjenda um starfið voru Ólöf Skaftadóttir, annar stjórnenda hlaðvarpsins Komið gott, og Þórarinn Hjartarson, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling. Bæði hafa þau átt í ágreiningi við nefndina um kröfur hennar um skráningu hlaðvarpa sem fjölmiðla. Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson, sem standa að hlaðvarpinu Chess After Dark og hafa einnig gagnrýnt nefndina, sóttu sömuleiðis um starfið.
Ágreiningur við umsækjendur
Fjölmiðlanefnd hefur á undanförnum misserum gengið eftir því að hlaðvarpsstjórnendur skrái starfsemi sína sem fjölmiðla í samræmi við fjölmiðlalög. Því hafa nokkrir þeirra mótmælt harðlega og gagnrýnt nefndina fyrir að ganga of langt í …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir