Danska þingið greiddi í dag atkvæði um að staðfesta öryggissamning sem Danmörk undirritaði við Bandaríkin og Grænland í september. Samningnum er ætlað að draga úr spennu vegna tíðra yfirlýsinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að innlima Grænland í Bandaríkin.
Folketingið, sem er skipað 179 þingmönnum, samþykkti samninginn að lokinni annarri umræðu og greiddu allir 109 þingmenn sem voru viðstaddir atkvæði með honum. Atkvæðagreiðslan fór fram án umræðu eða mótatkvæða.
Grænlenska þingið hafði staðfest samninginn í byrjun nóvember. Hann var undirritaður í New York 22. september og er viðbót við samkomulag frá 1951 um hernaðarviðveru Bandaríkjanna á Grænlandi.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, fagnaði „stórum degi“ á samfélagsmiðlum. Hún sagði samninginn „góðan fyrir Grænland, konungsríkið Danmörku og Bandaríkin. Og fyrir NATO og Evrópu.“
Hún bætti við að þetta væri „samningur sem virðir fullveldi konungsríkisins. Óskert yfirráð þess yfir landsvæði sínu. Og sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga.“
Samningurinn tekur gildi þegar …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir