„Það er mikilvægt að tala um Hönnuh“

Vinkonur Hönnuh Jane Large eru í miklum sárum eftir banaslys á Krýsu­vík­ur­vegi. Þær minn­ast bestu vin­konu sinnar sem lífs­glaðrar stúlku sem lýsti upp allt umhverfið í kringum sig.

Bara þú veist!
Bara þú veist! Marianna Laila segir vin­konu sína, Hönnuh Jane Large, hafa tekið hröðum fram­förum í íslensku yfir sum­arið. Einn af upp­á­halds­frös­unum sem hún end­ur­tók var „Bara þú veist!“ Mynd: Golli

„Hún var bara ein­stök og var alltaf að reyna að tala íslensku,“ lýsir Marianna Laila Jensen Brynju­dóttir bestu vin­konu sinni, Hönnuh Jane Large. Þær kynnt­ust eftir að Hannah byrj­aði með íslenskum kærasta sínum, Halldóri Þór Har­alds­syni, sem er alltaf kall­aður Dolli. Marianna Laila og vin­kona hennar, Zuzanna Zarebska, þorðu ekki að tala við Hönnuh þegar þær sáu hana fyrst með Dolla í Reykja­nesbæ á síð­asta ári. Þær þekktu hann og voru for­vitnar um þessa nýju kær­ustu en þorðu ekki að tala við hana.

„Hún „add­aði“ okkur á sam­fé­lags­miðlum og við fórum að tala saman,“ segir Marianna, sem jafn­framt lýsir hversu frökk Hannah Jane var orðin. Marianna segir hana hafa verið mjög fyndna og hún hafi ítrekað reynt að tala íslensku. „Það var ógeðs­lega fyndið, hún var alltaf að segja „eggi, eggi,““ segir Marianna og leikur eftir írskan fram­burð Hönnuh.

Hún segir Hönnuh hafa skilið orð og orð í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár