Miðflokkurinn sækir í sig veðrið en Viðreisn gefur eftir

Mið­flokk­ur­inn heldur áfram að bæta við sig fylgi á meðan fylgi Við­reisnar er í jöfnum tröppu­gangi niður á við. Vinstri græn ná fimm pró­senta fylgi en Flokkur fólks­ins er áfram undir þeim þrös­k­uldi.

Uppleið
Uppleið Mið­flokk­ur­inn mælist nú með 15,1 pró­sents fylgi í könnun Maskínu og hefur fylgið verið að þok­ast upp. Mynd: Golli

Mið­flokk­ur­inn mælist með 15,1 pró­sents fylgi í nýrri skoð­ana­könn­un­inni Maskínu um fylgi stjórn­mála­flokka á Alþingi. Flokk­ur­inn fékk 12,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum, mæld­ist með 13 pró­sent í sept­em­ber og 13,4 pró­sent í októ­ber.

Þróunin er í hina átt­ina hjá Viðreisn. Flokk­ur­inn fékk 15,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum en mæld­ist með 11,9 pró­sent í sept­em­ber, 11,4 pró­sent í októ­ber og 9,2 pró­sent nú. Greint er frá nið­ur­stöð­unum á Vísi.

Sam­fylk­ingin er áfram stærsti flokkur lands­ins með 27,8 pró­sent fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 22,3 pró­sent.

Könnun Maskína 21. nóvember 2026
Samfylkingin
27,8%
Sjálfstæðisflokkurinn
22,3%
Miðflokkurinn
15,1%
Viðreisn
9,2%
Framsókn
8,4%
Vinstri græn
5,0%
Flokkur fólksins
4,8%
Sósíalistaflokkurinn
4,2%
Píratar
3,1%
Heimild: Maskína. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár