Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, seldi ungum skipstjóra smábátaútgerðina sína, Sleppu ehf, skömmu eftir að breytingar urðu á reglugerð um strandveiðar í fyrra. Í Morgunblaðinu í dag er hann sakaður um „sýndarsamning“ og að hafa „hallað réttu máli um viðskiptin“.
Þannig hafi samningur um riftun viðskiptanna við skipstjórann Sigurbjörgu Áróru Ásgeirsdóttur, ári eftir að hún tók yfir útgerðina, ekki falið í sér neina greiðslu. Í Morgunblaðinu er vitnað til umfjöllunar Vísis frá síðasta sumri, þar sem kom fram: „Aðspurður sagðist hann ekki vera með nákvæma upphæð fyrir framan sig en áætlar að hann hafi fengið á bilinu sextán til átján milljónir greiddar fyrir sinn hlut.“ Því hafi Sigurjón „hallað réttu máli“, samkvæmt forsíðufyrirsögn Morgunblaðsins og mbl.is í dag, enda hafi samningurinn falið í sér mun lægra kaupverð.
Vegna nýrra breytinga á skilyrðum strandveiða sem tóku gildi með reglugerð 1. apríl í fyrra var sérstakur hvati til að skrá …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir