Á ferð­inni Georg, send­ill hjá Wolt, á ferð með sendla­tösku í ljós­bláum ein­kenn­i­slit Wolt. Mynd: Golli

Neysla á fólki

Á einni klukku­stund fékk George tvær pantanir og vann sér inn 2.200 krónur, langt undir tíma­kaupinu sem Wolt hefur vísað til.

I.

„Hver dagur byrjar eins,“ segir George. Á hverjum morgni vaknar hann klukkan níu og fer beint að vinna, á svokölluðum stafrænum vinnu­vettvangi, í hark­hagkerfinu. Á virkum dögum vinnur hann til klukkan 11, um helgar til 12 á miðnætti.

„Það er mikið. En þetta verð ég að gera til að ná saman nægri upphæð. Jafnvel þótt við viljum það ekki, þá neyðumst við til þess. Verðum að vinna að minnsta kosti tólf tíma. Núna hef ég þurft að lengja vinnu­tímann því staðan er ekki góð. Öðruvísi þéna ég ekki peninga,“ segir hann. Af launum dregur hann svo útgjöld dagsins, eins og kaffi, Red Bull eða kók, og svo auðvitað bensín. „Ef ég þéna til dæmis 30.000 krónur allan daginn dreg ég frá þessar 5.000 krónur í bensíninu og svo 1.500 til 2.000 krónur sem farið hafa í hitt.“

Í febrúar sagði Christian Kamhaug, upplýsinga­fulltrúi Wolt, í viðtali …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár