Stærsti sporðdreki sem vitað er um að hafi lifað á jörðinni kom loks í leitirnar árið 2026 – meira en hálfri annarri öld eftir að fyrstu steingerðu leifar hans fundust. Vísindamenn við Náttúrugripasafnið í London skýrðu frá því í júní að nú væri staðfest að leifarnar væru af risavöxnum sporðdreka sem var á dögum fyrir 415 milljónum ára og töluvert á annan metra að lengd. Sá heimur sem þetta dýr bjó í var gerólíkur okkar heimi.
Fyrir 415 milljónum ára var lífið á þurrlendi Jarðar enn á bernskuskeiði. Þar voru engir skógar og yfirleitt engin tré, engin blóm og engin grös. Lágvaxnar og tiltölulega einfaldar plöntur uxu á rökum svæðum og meðfram ám og vötnum. Dýralíf var mun fjölbreyttara í sjónum en á landi, en ýmis liðdýr voru þó farin að leggja undir sig þurrlendið. Meðal þeirra voru sporðdrekar og sumir þeirra urðu ótrúlega stórir.
Nú sumarið 2026 var greint frá niðurstöðum rannsókna á leifum sporðdreka sem talinn er hafa getað orðið um 120 sentímetra langur. Hann er þar með stærsti sporðdreki sem vitað er um að hafi lifað á jörðinni. Tegundin nefnist Praearcturus gigas og leifar hennar hafa fundist á Bretlandseyjum þar sem nú heitir Veils.
Að ganga fram á svona risa
Sporðdrekar eru nú taldir einhver skelfilegustu dýr sem menn geta hugsað sér, þótt flestir séu aðeins nokkrir sentímetrar að lengd. Ímyndið ykkur að ganga fram á þennan risa!
En það er sem betur fer engin hætta á því.
Heimsálfuskipan var þá giska öðruvísi en nú. Þetta var löngu fyrir daga risaheimsálfunnar Pangeu þegar öll meginlöndin hrúgðust saman í hóp og Veils var þá í útjaðri nýmyndaðs meginlands sem jarðvísindamenn kalla Laurussiu og svamlaði um sjóinn skammt sunnan miðbaugs.
Ekki má rugla Laurussiu saman við Laurasiu sem kom til sögunnar seinna!
Halann vantaði
Heimsálfunni Laurussiu tilheyrðu svæði sem nú eru Norður-Ameríka og Evrópa. Veils var suðausturjaðar heimsálfunnar. Þá voru þar víðáttumiklar setsléttur, árfarvegir, flæðilendur, strandsvæði og grunn lón.
Merkilegt má heita er að vísindamenn höfðu lengi haft undir höndum steingerðar leifar dýrsins án þess að átta sig almennilega á því hvers kyns skepna það var. Breski steingervingafræðingurinn Henry Woodward lýsti tegundinni fyrst árið 1871 en taldi þá að um væri að ræða risavaxið krabbadýr. Á níunda áratug síðustu aldar kom fram sú kenning að þetta væri sporðdreki en erfitt reyndist að færa sönnur á hana. Meðal annars vantaði halann, eitt helsta einkenni sporðdreka.
Á hverju lifði risinn?
Árið 2015 var hins vegar lýst vel varðveittum steingervingi annars forns sporðdreka í Kanada. Og það var svo nú í sumar sem samanburður á líkamsgerð dýranna tók af allan vafa um að Praearcturus gigas hafi verið sporðdreki. Klær hans voru rúmlega 16 sentímetra langar. Stærstu sporðdrekar nútímans ná hins vegar aðeins rúmlega 20 sentímetra heildarlengd.

En á hverju gat svona stór skepna lifað á þessum tíma? Engin hryggdýr voru enn farin að vafra um á landi uppi, engin froskdýr né skriðdýr, hvað þá spendýr eða fuglar. Þar var hins vegar að finna smávaxna fjölfætlunga og ýmis áttfætludýr. Margfætlur og kóngulær öðru nafni. Risasporðdrekinn hefur væntanlega getað tínt slík dýr upp án mikillar fyrirhafnar.
Skordýr voru hugsanlega komin til sögunnar en það er umdeilt.
Sporðdrekinn knái hefur verið langsamlegasta stærsta dýrið sem þá bjó á landi. Og vísindamenn telja raunar ólíklegt að nægilega mikla fæðu hafi verið að finna á þurrlendinu til að standa undir næringarþörf þvílíks risadýrs.
Veiðar í vatni
Í ám og vötnum var hins vegar fjölbreytt dýralíf, meðal annars frumstæðir fiskar með beinplötur sér til varnar og ýmis stór liðdýr, svo sem sæsporðdrekar. Líklegt þykir því að risasporðdrekinn hafi einnig stundað veiðar í vatni. Á líkama hans hafa fundist ummerki um útlimaflipa sem hugsanlega auðvelduðu honum sund.
Ein merkasta niðurstaða rannsóknarinnar frá í sumar er að liðdýr skyldu ná þessari stærð svo snemma í þróunarsögunni. Um það bil 100 milljón árum síðar, á kolatímabilinu svokallaða, urðu ýmis liðdýr risavaxin og hafa menn meðal annars rakið það til mikils súrefnisinnihalds andrúmsloftsins, en það hafði þá aukist gríðarlega og var til dæmis mun meira en núna. Þá voru uppi 70 sentímetra langar drekaflugur og hátt í þriggja metra langar þúsundfætlur.
Við lýði í 40 milljón ár?
En risasporðdrekinn var uppi löngu fyrir þann tíma. Hugsanlega átti stærð hans fremur rætur að rekja til takmarkaðrar samkeppni við önnur rándýr og þess að vatnið hafi stutt við þungan líkama hans.
Ekki er vitað hversu lengi tegundin lifði. Steingervingar sem fundist hafa í Somerset á Englandi benda hugsanlega til þess að hún hafi enn verið við lýði 40 milljónum ára síðar. Tegundin hefur þannig verið mun langlífari en mennirnir munu verða.
Á þeim tíma hafði lífríki jarðar tekið stakkaskiptum, fyrstu skógarnir voru farnir að breiðast út og hryggdýr að nema land.
Risasporðdrekinn tilheyrði þannig heimi sem var gerólíkur þeim sem við þekkjum en var einmitt um þessar mundir að taka fyrstu skrefin í átt til hans.
Hér má lesa um rannsóknina frá í sumar.
Sporðdrekategundin hefur þannig verið mun langlífari en mennirnir munu verða
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir