Fyrir þremur árum var kennari í Noregi ávítaður fyrir að leggja iPada nemenda sinna til hliðar og taka aftur upp blað og penna. Nú er landið allt að endurmeta afstöðu sína til nýrrar tækni.
Eftir að fartölvur og skjáir urðu hluti af nærumhverfi nemenda í skólum landsins er Noregur að taka kennslubækur aftur í notkun til að reyna að snúa við mikilli hnignun í lestrar- og skriftarfærni nemenda. Viljinn til að ná aftur stjórn á tækninni, í stað þess að sætta sig við afleiðingar hennar, nær út fyrir skólana í þessu tæknisinnaða landi.
„Það er ástæða til að ætla að skjáir hafi verið teknir of hratt í notkun í skólum, áður en við höfðum næga þekkingu á áhrifum þeirra og því hvað telst góð kennslufræðileg notkun stafrænna tækja,“ sagði Torgeir Micaelsen, ráðherra stafrænna mála í Noregi, við AFP.
Í nærri 20 ár hafa norsk stjórnvöld stuðlað að …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

















































Athugasemdir