Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum

Mennta­mála­ráðu­neytið hefur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöðum PISA eftir sveit­ar­fé­lögum. Munur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins minnkar þegar tekið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yfir lands­með­al­tali í vís­indum, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær undir á öllum þremur sviðum.

Nemendur í Reykja­vík standa sig betur en nem­endur að jafn­aði á land­inu á öllum þremur sviðum PISA-rann­sókn­ar­innar, jafn­vel þegar tekið hefur verið til­lit til félags- og efna­hags­legrar stöðu og erlends bak­grunns þeirra. Nemendur í Reykja­nesbæ eru hins vegar áfram undir lands­með­al­tali á öllum sviðum eftir sömu leið­rétt­ingu.

Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins á nið­ur­stöðum PISA 2025. Ráðu­neytið hefur birt nið­ur­stöður í fyrsta sinn fyrir öll sjö fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­lög lands­ins. Þau ná til þriggja af hverjum fjórum þátt­tak­endum rann­sókn­ar­innar hér á landi.

Bakgrunnur skýrir hluta

Áður en tekið er til­lit til bak­grunns nem­enda eru Reykja­vík og Kópa­vogur yfir lands­með­al­tali í vís­indum, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi. Akureyri er yfir með­al­tali í vís­indum og stærð­fræðilæsi og Garðabær í stærð­fræðilæsi.

Það breyt­ist þó þegar nem­endur sveit­ar­fé­lag­anna eru bornir saman við nem­endur á lands­vísu sem hafa svip­aða félags- og efna­hags­lega stöðu og sama bak­grunn. Í flestum sveit­ar­fé­lögum minnkar …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Niðurstöður PISA

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár