Samsæriskenningin um „útskiptin miklu“, sem á ensku er kölluð The Great Replacement, gengur út á að markvisst sé unnið að því að skipta innfæddum íbúum vestrænna ríkja út fyrir innflytjendur, einkum fólk af öðrum uppruna en evrópskum.
Kenningin á sér rætur í franskri þjóðernishyggju en franski rithöfundurinn Renaud Camus gerði hugtakið þekkt með bók sinni Le Grand Remplacement árið 2011. Kenningin hefur náð mikilli útbreiðslu meðal öfgahægrimanna og hvítra þjóðernissinna og verið hluti af hugmyndafræði nokkurra þeirra sem framið hafa hryðjuverk.
Kjarni samsæriskenningarinnar er ekki sá að samsetning íbúa vestrænna ríkja sé að breytast heldur að breytingarnar séu liður í vísvitandi áætlun um að ryðja innfæddum þjóðum úr vegi.
Athugasemdir