Eiginkona skipstjóra Jökuls ÞH, sem fórst austur af landinu í gærkvöldi, segist innilega þakklát fyrir að hafa fengið eiginmann sinn heim en um leið sé hjarta hennar brostið vegna þeirra fjölskyldna sem misstu ástvini sína. Þrír skipverjar fórust en fjórtán var bjargað á lífi.
„Eftir harmleikinn um borð í Jökli ÞH í gærkvöldi er erfitt að finna orð yfir allt sem ég finn fyrir,“ skrifar hún í færslu á Facebook í dag. Þar birtir hún mynd úr myndsímtali við manninn sinn eftir að honum hafði verið bjargað.
„Í dag er ég innilega þakklát fyrir að hafa hann heima hjá mér og börnunum okkar, en um leið er hjarta mitt brostið vegna fjölskyldnanna sem fá ástvini sína ekki heim.“
Það var laust eftir klukkan fimm síðdegis í gær sem skipstjórinn hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og greindi frá því að leki væri kominn að skipinu. Jökull var þá …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir