Sóttvarnarlæknir segir mislingafaraldur í Bandaríkjunum dapurlegan

Mislinga­faraldur í Banda­ríkjunum er sá mesti í 35 ár. Sóttvarna­læknir á Íslandi segir að það sé ráð fyrir Íslendinga fædda um miðjan níunda áratuginn að kanna hvort þeir séu full­bólusettir fyrir mislingum.

Mikil útbrot
Mikil útbrot Eitt af höf­uð­ein­kennum misl­inga eru mikil útbrot nokkrum dögum eftir smit. Mynd: Shutterstock

Guðrún Aspelund sóttvarna­læknir Íslands segir það dapurlegt hvernig Bandaríkja­menn hafa misst niður varnir gegn mislingum þar í landi. Banda­ríkin hafa misst stöðu sína sem land sem hefur útrýmt mislingum eftir að hafa staðið í fremstu röð í þeim efnum um árabil. Faraldur geisar þar í landi og er sá versti í allt að 35 ár. Banda­ríkin stóðu nokkuð framar Evrópu hvað bólu­setningar varðaði um árabil. Aðeins á þessu ári hafa að minnsta kosti sex dauðsföll orðið vegna mislinga þar í landi.

Það tók Banda­ríkin 40 ár að útrýma mislingum með hjarð­ónæmi. Banda­ríkin eru þó alls ekki eina landið sem glímir við mislinga nú; fjölmörg lönd í Evrópu eiga í vanda með mislinga­smit, þar á meðal Bretland og Austur­ríki. Langflest tilfelli hafa komið upp í Rúmeníu á síðustu árum þegar litið er til Evrópu. Íslendingar standa vel að vígi í barátt­unni við mislinga, en þó skortir lítillega upp á að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár