Evrópusambandið óttast að Evrópa dragist aftur úr í enn einu tæknikapphlaupi, enda stendur hún Bandaríkjunum og Kína að baki í gervigreind. ESB kynnir því í dag áætlanir sem sambandið segir að muni gera álfuna að stórveldi á heimsvísu í skammtatölvum.
Skammtatæknin nýtir lögmál skammtafræðinnar, sem lýsa eðlisfræðilegum fyrirbærum á mælikvarða atóma og öreinda, til að leysa tiltekin verkefni mun hraðar en hefðbundnar tölvur.
ESB segir að skammtatækni geti haft „hvetjandi áhrif“ á ýmsum sviðum. Hún gæti leitt til framfara í lyfjaþróun, gert kleift að greina sjúkdóma fyrr og skilað af sér mun skilvirkari rafhlöðum. Hún gæti jafnvel hraðað þróun gervigreindar.
„Skammtatækni er líka gríðarlega stórt tæknisvið. Hún gæti orðið næsta gervigreind, þróast samhliða henni eða kannski ekki náð þeirri útbreiðslu sem þarf,“ sagði Hadrien Valembois hjá atvinnugreinasamtökunum Business Software Alliance.
Það velti þó allt á reglunum sem settar verði, fjármögnun tækninnar og því hvernig stjórnvöld …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir