Lögreglu verður leyft að beita rannsóknarúrræðum á borð við símahleranir og fjarskiptaeftirlit við rannsókn alvarlegra brota á höfundalögum eftir að Alþingi samþykkti í dag frumvarp um hækkun hámarksrefsingar fyrir stórfelld eða ítrekuð brot. Hámarkið hækkar úr tveggja ára fangelsi í sex ár, að því er fram kemur í tilkynningu Stjórnarráðsins.
Frumvarpið var lagt fram af Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Breytingunni er ætlað að ná til stórfelldrar dreifingar höfundaréttarvarins efnis en ekki þeirra sem kaupa áskrift eða streyma efni, samkvæmt tilkynningunni.
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar lagði í áliti sínu á frumvarpið áherslu á að hækkun refsirammans í sex ár gerði lögreglu kleift að beita ríkari rannsóknarúrræðum. Í tilkynningunni er einnig nefnt alþjóðlegt samstarf við rannsókn alvarlegra brota. Þar segir jafnframt að fyrningarfrestur brotanna verði tíu ár í stað fimm ára. Meirihluti nefndarinnar vísaði meðal annars til þess að hámarksrefsing fyrir stórfelld eignaspjöll væri sex ára fangelsi …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir