Aðeins ein björgunarþyrla var tiltæk þegar Jökull ÞH sökk 60 sjómílum austur af landinu í gærkvöldi. Á blaðamannafundi forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar í morgun kom fram að flugstjóri þyrlunnar, TF-GRÓ, hefði þurft að brjóta reglur í tilraun til að bjarga 17 manna áhöfninni sem komin var í sjóinn í björgunargöllum. Því var lýst á fundinum hvernig áhöfnin, björgunaraðilar og áhafnir fiskiskipa á svæðinu hefðu leitt til þess að fjórtán skipverjar lifðu af.
„Reglan er sú að fara ekki lengra en 20 mílur frá ströndum, nema hafa backup,“ sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, á fundinum í morgun.
„Við áttum samtal ég og flugstjórinn í gær þegar útkallið kom. Það má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur og ætti bara að áminna hann. En þarna eru 17 menn í sjónum og þeir ræddu þetta sín á milli áhafnarmeðlimir og það voru allir sammála um að fara. Þetta eru …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir