Nýr frændi fundinn! Hæ, greinaskjálfari!

Jóla­dagatal dýranna – 28 dagar til jóla – Í áratug hafa vísinda­menn leitað að áður óþekktri apakatta­tegund og kynntu hana loks á þessum ári

Likweli
Likweli

Fyrir um 30 milljónum ára skildust að tvær greinar apakatta í trjákrónunum suður í Afríku. Önnur greinin þróaðist og breyttist mikið og endaði sem menn – við! Hin greinin hélt áfram að búa í trjánum og úr varð ný apakattategund. Hún lét svo lítið fara fyrir sér í skógunum í Kongó að margt fólk hafði ekki hugmynd um tilvist hennar. En nú árið 2026 hafa vísindamenn kynnt hana fyrir umheiminum.

Gerið svo vel, hér er kominn apakötturinn likweli eða Colobus congoensis, eins og hin tegund hefur verið á fræðimáli.  Það var árið 2008 sem tveir vísinda­menn á ferð um skóga austan við Lomami-fljót í Kongó komu auga á apa sem þeir könnuðust ekki við. Þeim tókst að ná mynd af honum en hún var ekki nógu skýr til að hægt væri að fullyrða að um áður óþekkta tegund væri að ræða.

Likweli býr því sem næst í miðri Afríku

Heil tíu ár liðu uns skógar­verði á þessum slóðum tókst að ná almennilegum myndum af apanum. Þá hófst skipuleg leit að honum og árið 2021 komust vísinda­menn yfir hræ þriggja apa sem veiðimenn höfðu fellt. Þar með var loks hægt að rannsaka erfðaefni þeirra.

Niður­stöður rann­sóknanna birtust í vísinda­tímaritinu PLOS ONE þann 15. júlí 2026. 

Búsvæði á við Reykjanesskaga

Það er til marks um hve sjaldgæfur apinn er að þegar vísinda­mennirnir heimsóttu 52 þorp á þessum slóðum hittu þeir aðeins í átta þorpum fólk sem gat lýst honum svo að ekki varð um villst.

Rófan er löng!

Nafnið likweli er orðið sem veiðimenn af Balanga-þjóðflokkinum nota um hann. Ekki liggur fyrir hvað orðið þýðir. Aðrir heimamenn kalla apann „greinaskjálfara“.

Heimkynni likweli eru sunnan við borgina Kisangani í austan­verðu Alþýðu­lýðveldinu Kongó, á mjórri landræmu milli fljótanna Lomami og Lilo, að miklu leyti innan Lomami-þjóð­garðsins. Þekkt útbreiðslu­svæði apans er aðeins um 1.700 ferkílómetrar, en það jafn­gildir nokkurn veginn Reykja­nesskaganum á Íslandi. Þar eru hávaxnir og þéttir regn­skógar og virðist apinn gera nokkuð strangar kröfur til búsvæðis síns. Hann kýs helst skóga sem vaxa á djúpum leirjarð­vegi og fara ekki á kaf í árstíða­bundnum flóðum þar um slóðir.

Innan við þúsund

Likweli heldur sig hátt uppi í trjá­krónunum og lifir oftast í litlum hópum. Apinn er að stærð og þyngd á við ref eða mjög stóran heimilis­kött en hefur allt að 80-90 sentí­metra langa rófu. Algengt virðist að sex dýr haldi hópinn. Þótt erfitt sé að koma auga á apana eru þeir síður en svo hljóð­látir. Einkum í dögun gefa þeir frá sér kröftug öskur og einkennileg hrotu­hljóð sem vísinda­mennirnir hafa hljóð­ritað.

Enn er margt á huldu um lífshætti apanna, svo sem æxlun þeirra, uppeldi ungviðisins, fæðuval og innbyrðis samskipti. Reikna má með að líkt og skyldir apar lifi þeir fyrst og fremst á lauf­blöðum. Ekki er vitað hve margir þeir eru en einn vísinda­mannanna telur hugsanlegt að þeir séu innan við þúsund talsins.

Greinaskjálfarnir voru því umsvifa­laust settir á lista yfir dýr í útrýmingar­hættu.

Ekki verður séð, segja vísinda­mennirnir, að menn hafi (ennþá) þjarmað svo að búsvæði þeirra að þeir séu svo sjaldgæfir þess vegna. Kannski er einfald­lega ekki rúm fyrir fleiri í nátt­úrunni.

Þrjár aðrar „nýjar“ tegundir

Erfða­rannsóknir benda til þess að þróunar­leiðir likweli og nánustu núlifandi ættingja hans hafi skilið fyrir um fimm milljónum ára. Þeir ættingjar búa nú meira en 1.200 kíló­metrum vestar í Kongó. Sameiginlegur forfaðir okkar mannanna og likweli var hins vegar líklega uppi fyrir 25–30 milljónum ára eins og fyrr sagði.

Annar nýfund­inn frændi eða frænka.Þessi býr í Laos.

Nú eru þekktar vel á fimmta hundrað tegundir eiginlegra apa í heiminum og skyldra prímata að auki. Uppgötvun likweli er engu að síður fágætur viðburður. Það er óneitanlega merkilegt að svo stórt og hávært spendýr skuli hafa farið fram hjá vísinda­mönnum allt fram á 21. öldina.

Á árinu 2026 hafa raunar verið skráðar fjórar nýjar apategundir en í tveimur tilfellum er að um ræða öskurapa í Suður-Ameríku sem hafa verið skilgreindir sem sérstakar tegundir eftir DNA-rann­sóknir. Fjórða tegundin býr í Laos og hefur eingöngu verið lýst á grund­velli ljósmynda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár