Saltvítið við Evrópustrendur

Þegar Mið­jarð­ar­hafið þorn­aði upp

Saltslétta
Salt­slétta Þegar Mið­jarð­ar­hafið ein­angr­að­ist frá Atl­ants­hafi gufaði sjór þar upp og víð­áttu­miklar salt­sléttur komu í ljós. Mynd: oscarwcastillo / Pixabay

FFyrir 200 millj­ónum ára voru öll meg­in­lönd Jarðar enn meira og minna sam­einuð í eina risa­stóra heims­álfu, sem við köllum Pangeu. Ekki var Pangea eins og ein og sam­felld pönnu­kaka, heldur gekk mikið og breitt haf­svæði inn í hana austan frá. Þar var Tethys-haf, sem átti eftir að verða eitt af stór­höfum jarð­sög­unnar.

Pangea leysist upp

Um þetta leyti tóku helj­ar­kraftar land­reks­ins að brjóta Pangeu í sundur, fyrst í tvo meg­in­hluta. Norð­ur­hlut­ann köllum við Lárasíu og í honum voru meg­in­lands­flek­arnir sem síðar urðu Norður-Ameríka, Evrópa og stór hluti Asíu. Suð­ur­hlut­ann köllum við Gondwanaland og til hans heyrðu Afríka, Suður-Ameríka, Indland, Ástralía og Suð­ur­skauts­landið.

Og leið nú og beið. Gondwanaland tók að lið­ast í sundur og Lárasía klofn­aði milli Norður-Ameríku og Evrópu. Milli þeirra opn­að­ist Atl­ants­hafið, fyrst mjótt en breikk­aði síðan jafnt og þétt.

Afríka hafði á meðan slitið sig frá gömlum félögum sínum í Gondwanalandi og …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár