Áttu hund? Þá veistu náttúrlega að þetta eru gáfuð dýr sem eiga auðvelt með að læra merkingu ýmissa orða. Allir hundar læra fyrirhafnarlítið merkingu skipunarorða eins og „sittu“, „komdu“, „leggstu“, „bíddu“ og þess háttar. Flestir hundaeigendur eru líka sannfærðir um að hundar þeirra þekki líka nöfn á fjölmörgum hlutum. Það er nú víst ekki endilega rétt. Að læra að tiltekinn hlutur heiti „bangsi“, annar „bolti“ og sá þriðji „kanína“ virðist reyna á aðra vitsmunalega hæfileika en að skilja skipanir og það er ekki öllum hundum gefið.
Ungverskir vísindamenn gerðu árið 2021 rannsókn þar sem 34 „venjulegir“ hundar og sex hundar sem þóttu hafa sérstakar „orðanámsgáfur“ fengu þjálfun í þrjá mánuði við að læra heiti leikfanga.
Af venjulegu hundunum 34 þótti aðeins einn fær um að læra heiti leikfanga með sannfærandi hætti.
Allir sex hundarnir með sérstöku „orðanámsgáfurnar“ lærðu hins vegar milli 11 og 37 ný heiti á tímabilinu.
Þessir óvenjulegu hundar eru kallaðir Gifted Word Learner Dogs í vísindaritum. Margir þeirra eru af Border Collie kyni, en þó alls ekki allir.
Frægasta dæmið er tíkin Chaser, sem lærði heiti 1.022 einstakra leikfanga og gat greint þau hvert frá öðru.
Venjulegir hundar geta vissulega lært merkingu nafnorða á borð við „bolti“, „ól“ og „bíll“. En erfitt getur verið að greina hvort þeir skilji orðið sem sjálfstætt heiti hlutarins eða tengi það fyrst og fremst við kunnuglegar aðstæður og athafnir.
Það sem kemur vísindamönnum samt sérstaklega á óvart er hve gríðarlegur munur virðist vera milli einstaklinga hvað þessa hluti snertir. Ekki er enn vitað hvort eða þá að hve miklu leyti þessi sérstaka „orðanámsgáfa“ er meðfædd.
Hér má lesa um þessa rannsókn.
Alls eru þekktir um fimmtíu hundar sem búa yfir svo óvenjulegri orðanámsgáfu að þeir geta lagt á minnið nöfn á hundruðum leikfanga sinna.
Ný rannsókn sem birtist í vísindaritinu Science 8. janúar 2026 leiðir hins vegar í ljós að sumir þessara hunda geta meira að segja aukið orðaforða sinn með því einu að hlera samtöl manna.
Shany Dror, vísindamaður við háskóla í Vínarborg og Búdapest, og samstarfsmenn hennar gerðu tilraunir með tíu hunda sem áður höfðu sýnt framúrskarandi hæfileika á þessu sviði. Meðal þeirra voru fjárhundurinn Basket af Border Collie kyni og Labradorhundurinn Augie.
Hundarnir fylgdust með eigendum sínum sýna annarri manneskju nýtt leikfang og nefna það á nafn í samtali við hana. Eigendurnir gættu þess að beina orðum sínum ekki að hundunum sjálfum. Hvert nýtt heiti fengu hundarnir að heyra í samtals átta mínútur á nokkrum dögum.
Síðan voru leikföngin sett innan um önnur leikföng í öðru herbergi og hundarnir beðnir að sækja þau. Sjö hundanna tíu höfðu með sannfærandi hætti lært heiti nýju leikfanganna, sem meðal annars voru í líki skötu og beltisdýrs.
Vísindamennirnir gengu síðan lengra. Eigendurnir sýndu hundunum leikföngin en komu þeim fyrir í íláti áður en þeir nefndu þau á nafn. Þannig sáu hundarnir ekki viðkomandi hlut þegar þeir heyrðu heiti hans. Þrátt fyrir það tókst flestum þessara „ofurhunda“ að tengja orðin við rétta hluti.
Þessi aðferð við orðanámið er vel þekkt meðal manna. Börn geta þegar við átján mánaða aldur tileinkað sér ný orð með því einu að hlusta á samskipti annarra. Svipaðir hæfileikar hafa einnig komið fram hjá mannöpum og páfagaukum.
Ekki er þó þar með sagt að sömu ferli eigi sér stað í heila hunda og manna. Athygli vekur til dæmis að hundarnir sem tóku þátt í rannsókninni voru fullorðnir.
Vísindamennirnir vara jafnframt við því að yfirfæra niðurstöðurnar á hunda almennt. Þessir óvenjulegu einstaklingar kunna að búa yfir meðfæddum hæfileikum sem síðan hafa þroskast við einhverjar sérstakar aðstæður.
Frekari rannsóknir á þessum hæfileikum eru taldar munu ekki aðeins auka skilning okkar á greind hunda heldur einnig geti þær einnig varpað ljósi á þróun þeirra vitsmunalegu hæfileika sem gerðu mönnum kleift að þróa tungumál.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir