Móðir minnist sonar og dóttir föður sem fórust á sjó

Eggert Ellertsson og Aðalsteinn Steinþórsson eru tveir þeirra þriggja sem fórust þegar Jökull ÞH sökk austur af landinu á miðvikudags­kvöld.

Jökull ÞH
Jökull ÞH Jökull ÞH 299 við höfn­ina á Húsavík árið 2021. Skipið sökk austur af land­inu á mið­viku­dags­kvöld og þrír menn fór­ust. Mynd: Hafþór Hreiðarsson / Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar

Ástvinir manna sem fórust þegar skipið Jökull ÞH sökk austur af landinu á miðvikudags­kvölds hafa minnst þeirra í yfir­lýsingum síðastliðinn sólar­hring.

Þrír menn fórust í slysinu.

Foreldrar Eggerts Ellerts­sonar tilkynntu andlát sonar síns í yfir­lýsingu í gær. „Það er með djúpri sorg og þungum hjörtum sem við tilkynntum að okkar ástkæri Eggert lést í sjóslysinu í gær þegar Jökull ÞH 299 fórst,“ skrifaði móðir hans, Elín Halla Þórhalls­dóttir, á Facebook.

„Hugur okkar er jafnframt hjá fjöl­skyldum og ástvinum þeirra sem einnig misstu ástvini sína í þessu hörmulega slysi, sem og öðrum skip­verjum og aðstand­endum þeirra.“

Eggert var 41 árs gamall.

Dóttir Aðalsteins Steinþórs­sonar minnist föður síns, sem fórst einnig í slysinu. „Þú varst og verður alltaf einn af mínum stærstu fjár­sjóðum,“ skrifar hún.

„Og ef ég gæti fengið eina mínútu í viðbót með þér myndi ég ekki biðja um neitt annað en að fá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár