Á að vera ófrávíkjanleg krafa að sjómenn komist heim aftur

Formaður Sjómanna­sambands Íslands segir skips­skaða Jökuls mikið bakslag í öryggis­málum sjómanna. Um fjórtán ár eru liðin frá svo mann­skæðum skaða á sjó.

Aðstæður
Aðstæður Myndir frá Slysa­varn­ar­fé­lag­inu Lands­björgu sýna að aðstæður á vett­vangi slyss­ins voru krefj­andi. Mynd: Landsbjörg

Valmundur Valmundsson, sjómaður og formaður Sjómanna­sambands Íslands, segir sjóslysið þar sem þrír létust þegar Jökull ÞH sökk austur af Glettingsnesi á Aust­fjörðum í gærkvöldi mikið bakslag í öryggis­málum á sjó. Aðstæður voru erfiðar og veður vont þegar skipið sökk en enginn mannanna komst í björgunar­báta.

Landhelgis­gæslan hefur greint frá því að annar björgunar­báturinn sem var um borð í skipinu hafi reynst fastur og hinn hafi rekið frá áhöfninni. Allir náðu þó að komast í björgunar­galla.

„Það hlýtur að vera hægt að laga þetta“

„Ef þetta er eins og maður heldur þá er þetta mikið bakslag,“ segir Valmundur og rifjar upp að markmið Siglinga­ráðs hafi á sínum tíma verið að koma alfarið í veg fyrir banaslys á sjó.

Síðasta bana­slysið á sjó þar sem svo margir fórust var árið 2012 þegar íslenski togarinn Hall­grímur SI-77 fórst í Noregs­hafi. Þá komst Eiríkur Ingi Jóhannsson einn lífs …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár