Útgerðin heitir skipverjunum og aðstandendum stuðningi

Í tilkynningu útgerð­ar­innar GPG Seafood segir að það sé erfitt fyrir starfs­fólk að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. „Þau virðast máttvana,“ segir í tilkynn­ing­unni.

Hrósar björgunarfólki
Hrósar björg­un­ar­fólki Útgerðin GPG Seafood þakkar björg­un­ar­að­ilum sér­stak­lega fyrir þrek­virkið. Mynd: Austurfrétt/Gunnar

Útgerðin GPG Seafood vonar að útgerðinni verði sýndur skilningur á því að erfitt sé að svara öllum erfiðum spurningum tengdum slysinu strax. Skip þeirra, Jökull ÞH, sökk í gærkvöldi og þrír létust í sjóslysinu. Sautján voru um borð í skipinu.

„Margar spurningar vakna við atburð sem þennan. Við vonum að því verði sýndur skilningur að erfitt getur verið að svara þeim öllum svo skömmu eftir að hann gerist. Umfram allt þurfum við nú að hlúa að okkar fólki og þeim sem syrgja ástvini,“ segir í yfir­lýsingu útgerðarinnar.

Í yfir­lýsingunni segir að það sé erfitt fyrir starfs­fólk að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. „Þau virðast máttvana.“

„Útgerð Jökuls er lítil og atburðir gærkvöldsins snerta okkur öll djúpt. Hugur okkar er hjá skip­verjum, fjöl­skyldum og öðrum aðstand­endum. Fyrir­tækið mun gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða þau sem eiga um sárt að binda …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár