Agnar H. Johnson, formaður stjórnar Viðreisnar á Seltjarnarnesi, hefur lagt fram hugmyndir um byggingarlóðir á grænum síðum sem njóta verndar. Hann nefnir sölu lóða sem mögulega leið til að draga úr skuldsetningu bæjarins. Bæjarstjóri Seltjarnarness úr meirihluta Sjálfstæðisflokks boðaði í gær aðgerðir til bjargar fjárhag sveitarfélagsins.
„Nú er leitað ráða til að draga úr skuldsetningu sveitarfélagsins okkar. Vel mætti hugsa sér að skipuleggja byggingalóðir sem settar yrðu á sölu,“ segir Agnar í einni af þremur færslum sínum í Facebook-hópi bæjarbúa með tillögum um að brjóta land undir ný hverfi.
Hann nefnir byggð á Valhúsahæð utan þess sem hann kallar mikilvægasta verndarsvæðið vestast sem nýtur verndar sem náttúruvætti. Kollur Valhúsahæðar er jafnframt á náttúruminjaskrá vegna útivistargildis og útsýnis. Samkvæmt hugmyndinni yrði útsýnisskífa áfram á efsta punkti hæðarinnar á milli einbýlishúsa og aðgengi um svæðið tryggt milli húsanna.
Við Snoppu yst á Seltjarnarnesi við Gróttu leggur Agnar til hverfi …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir