Landsbjörg birtir myndir af vettvangi

Þrjú björgunar­skip Lands­bjargar voru á vettvangi þar sem 14 sjómönnum var bjargað eftir skipskaða í gær.

Á vettvangi
Á vett­vangi Mynd tekin um borð í björg­un­ar­skip­inu Haf­björgu, einu þriggja björg­un­ar­skipa Lands­bjargar sem send voru á vett­vang skip­skað­ans. Mynd: Landsbjörg

Aðstæður voru erfiðar þegar þyrla Landhelgis­gæslunnar hífði sautján skipverja upp úr sjó 100 kílómetra austur af landinu í gær. Fjórtán þeirra lifðu af, eftir að hafa verið meira en fjórar klukku­stundir í köldum sjónum.

Slysavarnar­félagið Lands­björg hefur birt myndir og myndbönd sem tekin voru um borð í björgunar­skipinu Hafbjörgu. Það var eitt þriggja björgunar­skipa sem send voru á vettvang.

Lands­björg

Ölduhæð náði allt að fimm metrum og treysta þurfti á að fiskiskip lýstu upp sjóinn á meðan björgunar­aðgerðum stóð. Á mynd­böndum Lands­bjargar má þó einnig sjá glitta í tunglið, sem veitti einhverja, en takmarkaða, birtu.

Öll nálæg skip voru beðin að fara á vettvang en flugvél Gæslunnar var fyrst á staðin.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár