Fimm dögum áður en fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu vakti Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, athygli á því að stofnunin hefði aðeins tvær björgunarþyrlur til taks um 65 prósent tímans. Sama dag kom fram að vegna bilunar hefði Landhelgisgæslan ekki getað sótt slasaða sjómenn í tæpar tvær vikur.
Þegar sautján skipverjar á Jökli lentu í sjávarháska á miðvikudagskvöld var aðeins ein af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar tiltæk. Fljúga þurfti henni frá Reykjavík, lenda á leiðinni til að taka eldsneyti, og tók í heild fjórar klukkustundir að komast á vettvang.
„Ég held að það segi sig sjálft að meiri viðbúnaður er alltaf betri
Allir skipverjar voru hífðir um borð í þyrluna, eftir að áhöfnin hafði losað sæti og skilið eftir búnað sem mátti missa sín á Höfn í Hornafirði. Fjórtán skipverjar komust lífs af. Þrír létust. Tveir …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir