Íslendingar hafa í samfélagi þjóða undirgengist skuldbindingu til þess að leggja meira fé í öryggismál í víðari skilningi. Við erum laus við öll hernaðarútgjöld og sjálfboðaliðar í björgunarsveitum sjá um stóran hluta öryggismála.
Við erum ekki öll viðbragðsaðilar, en bregðumst öll við í sameiningu þegar á reynir.
Fjörutíu ára aðdragandi
Fyrsta raunverulega björgunarþyrlan kom til Íslands árið 1972. Þyrlurnar voru strax orðnar þrjár 1973 með hléum, en frá því þá hafa þær verið tvær til fjórar. Núna eru þær þrjár og aðeins ein þeirra var nothæf þegar sautján manna áhöfn lenti í sjónum 60 sjómílum austur af Glettingi.
Í nóvember 1987 ræddi Steingrímur J. Sigfússon, þá þingmaður Alþýðubandalagsins, um áhyggjur sjómanna á norðurhluta landsins af því að engin björgunarþyrla væri þar.
„Ég hef rætt við sjómenn og margir sjómenn hafa rætt við mig af norðan- og austanverðu landinu,“ sagði Steingrímur J. á Alþingi. „Þeirra áhyggjur eru ekki síst þær að miðað við núverandi flugvél og vegalengdir tæki það óhemjulangan tíma að koma björgunarþyrlu héðan af Reykjavíkursvæðinu og norðaustur fyrir landið, ef þar bæri nú eitthvað upp á. Menn hafa vissulega rætt þann kost að staðsetja aðra af tveimur þyrlum, ef um þær væri að ræða, einhvers staðar nálægt norðausturhorni landsins, til að mynda á Egilsstöðum eða Akureyri, sem mundi muna miklu í þessu sambandi.“
Árið eftir var umræðan um björgunarþyrlur enn í gangi og málið í skoðun á Alþingi. Ég og þrjú önnur börn á Flateyri, 8 til 11 ára aðstandendur togarasjómanna, stofnuðum til hlutaveltu til þess að safna fyrir nýrri björgunarþyrlu. Afraksturinn var tæpar 20 þúsund krónur að núvirði, samkvæmt frétt um söfnunina í Morgunblaðinu.
Fjöldi fólks hefur bent á að nýja þyrlu vanti á Norðausturland, þar á meðal Halldór Benóný Nellett, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, í sjómannadagsræðu síðasta sumar.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, var á sömu nótum og Steingrímur J. í viðtali á mbl.is fyrir viku síðan. „Það má segja að með útgerð á þyrlum frá Reykjavík þá sé norðausturhornið meira og minna afskipt,“ sagði hann.
Núna, 39 árum eftir sömu umræður á Alþingi, átti sér stað sjóslys þar sem ferðatími björgunarþyrlunnar skipti sköpum. Allir vissu að það vantaði björgunarþyrlu utan Reykjavíkur.
Sundrung og samstaða
Áföll vekja spurningar um ábyrgð. Þær eru gjarnan flóknar og óþægilegar.
Það er auðvelt að kenna öðrum um, en um leið er leitin að orsök og ábyrgð leit að lausn. Sumir fordæma ríkisstjórnina. Að kvöldi slyssins hafði Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður kvartað undan því að „stjórnmálaelítan hlaði í sífellu undir Ríkisútvarpið“ og að fjárframlög til Landhelgisgæslunnar ættu að sæta aðhaldskröfu um 900 milljónir króna.
Hann beindi sjónum sínum að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og sakaði þær um „fagurgala“ um að axla ábyrgð í öryggis- og varnarmálum og kallaði þær „þetta lið“.
„Það er eins og að þetta lið leiði aldrei hugann að því að þær aðstæður gætu komið upp þar sem kalla þyrfti eftir þyrlu í aðstæðum þar sem þau fyndu sig í.“
Í fréttum K-100 í gærmorgun, sem er í eigu útgáfu Morgunblaðsins, fjargviðraðist útvarpsmaðurinn Jón Axel Ólafsson yfir því að ríkið greiddi fyrir rekstur Ríkisútvarpsins í stað þess að halda úti annarri björgunarþyrlu á norður- eða austurhluta landsins.
Sannleikurinn er flóknari. Hvorugur nefndi að í tíð Sjálfstæðisflokksins 2023 var til skoðunar hjá dómsmálaráðherra flokksins að selja flugvél Landhelgisgæslunnar vegna fjárþarfar, en hann bakkaði. Flugvélin gegndi lykilhlutverki í björgunarstarfi þegar Jökull sökk á miðvikudagskvöld.
Á sama tíma er augljóst að pólitíska ábyrgðin er til staðar. Núverandi ríkisstjórn lagði ekki áherslu á nýja þyrlu í stefnuyfirlýsingu sinni að öðru leyti en með því að hyggjast „auka öryggi almennings“ en segist hafa skoðað málið frá því hún varð til í desember 2024.
Skuldbinding Íslendinga
Víða um samfélagsmiðla er talað um Úkraínu í samhengi við sjóslysið, að við ættum að hætta að senda peninga þangað og verja þeim í okkur sjálf. Stuðningur Íslands við Úkraínu hefur farið vaxandi síðustu ár. Á árinu er hann áætlaður 6 milljarðar króna, en framlög til Landhelgisgæslunnar 8,6 milljarðar króna, en 12,8 milljarðar króna með loftrýmiseftirliti.
Sannleikurinn er sá að stuðningur Íslendinga við Úkraínu er lítill í samanburði við aðrar þjóðir. Hin Norðurlöndin greiða 4 til 8 sinnum meira en Íslendingar á hvern mann í stuðning til Úkraínu, samkvæmt Kiel-stofnuninni sem rekur fjárframlög til stuðnings Úkraínu.
Ofan á þetta eru herútgjöld Noregs og Danmerkur tæplega 3,3 prósent af landsframleiðslu, en Ísland ver engu til hers. Við erum þiggjendur þeirra varna og það skapar okkur aukna skyldu, sem við erum ekki að axla. Jafnvel þegar það hittir okkur sjálf fyrir.
Ráðstöfun hættunnar til annarra
Við getum valið að láta útlendinga um að sjá um varnir Íslands án fjárframlaga okkar. Við getum eins varið fjárhagslega hagsmuni með því að spara í viðbúnaði og láta fólkið sem starfar við björgun hafa val um að hætta lífi sínu eða lífi annarra, sem endaði núna með því að þyrlusveitin hætti sínu eigin lífi með því að fljúga þrefalt lengra út á haf, þó með vísan stuðning björgunarskips, flugvélar og áhafna fiskiskipa á svæðinu ef illa færi.
35 prósent tímans er aðeins ein þyrla til reiðu, sem þýðir að áhöfn hennar á ekki von á þyrlubjörgun ef illa fer. Til áminningar fórst björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar í Jökulfjörðum 8. nóvember 1983 með fjórum starfsmönnum Gæslunnar.
Í endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar á ríkisreikningi sem kom út í haust er bent á að íslensk stjórnvöld hafi ekki afmarkað hvernig uppfylla eigi skuldbindingu um að efla mikilvæga innviði. Kristrún Frostadóttir gaf út skuldbindinguna á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Haag í Hollandi í júní 2025 að efla áfallaþol innviða.
„Í Haag-yfirlýsingunni felst að Ísland hefur skuldbundið sig til þess að ráðstafa árlega 1,5% af vergri landsframleiðslu til þess að efla áfallaþol mikilvægra innviða sem hafa hernaðarlega þýðingu“, segir í endurskoðunarskýrslu ríkisreiknings. „Fjárhæð þessarar skuldbindingar liggur fyrir þó svo að ekki liggi fyrir áætlun um hvaða innviði ætlunin er að efla eða hvernig þessi útgjöld skuli fjármögnuð.“
Rekstur Landhelgisgæslunnar fellur undir varnartengda innviði. Björgunarþyrlur eru því ígildi herútgjalda í framlagi Íslendinga í varnarsamstarfi við önnur lýðræðisríki.
Rökleg niðurstaða
Rekstur nýrrar björgunarþyrlu utan Reykjavíkur, til dæmis á norðausturhluta landsins, er augljós út frá fimm rökum:
1. Íslenska ríkið sparar sér herútgjald.
2. Ísland hefur skyldur gagnvart öðrum þjóðum í bandalagi.
3. Ríkið sparar nú þegar vegna framlags björgunarsveita.
4. Ísland er ábyrgt fyrir öryggi ferðalanga í landinu sem greiða fyrir veru sína hér.
5. Sjávarútvegur og ferðaþjónusta njóta einna mest vaxandi hagnaðar allra atvinnuvega og öryggi þeirra ætti að greiðast af skattlagningunni.
Loks eru önnur sannindi sem við gefum okkur, að líf fólksins hefur gildi í sjálfu sér, þótt deila megi um forgangsröðun og orsakasamhengi í mismunandi leiðum að lífsbjörg af hálfu ríkisins.
Skuldin við sjómenn
Íslenskt samfélag stendur líka í sérstakri þakkarskuld við sjómannastéttina, sem hefur fórnað tíma með fjölskyldu og því sem flest okkar líta á sem hefðbundið líf, til að halda úti undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Þótt sjómenn hefðu verið þeir sem sóttu aflann og lögðu sig persónulega í óþægindi og hættu, voru það eigendur útgerðanna sem eignuðust kvóta og auðæfi þegar vel til tókst. Það minnsta sem við getum gert er að láta ekki fleiri ár líða eða fleiri líf týnast þegar allar skyldur segja okkur að borga fyrir björgun.
Það sem sjóslysið kennir okkur er aðallega þetta tvennt: að bíða ekki lengur og að þótt sumir vilji færa ábyrgðina yfir á suma frekar en aðra erum við í fullri samstöðu um að klára málið.
Skuldbinding sem ekki er staðið við
Landhelgisgæslan miðar við að veita læknisþjónustu innan 90 mínútna.
Það tekur meira en 90 mínútur að fljúga þyrlu frá Reykjavík í Neskaupstað eða á Egilsstaði við bestu aðstæður, en nær tveimur tímum í vályndum veðrum. Það er búið að velja að hafa þetta svona.
Valið sparar okkur 1,1 til 1,5 milljarða króna á ári, samkvæmt mati Landhelgisgæslunnar og dómsmálaráðuneytisins, kostnaðinn við að halda úti þyrlu á Akureyri, svo dæmi sé tekið. Ferðatími er helmingi styttri austur á land frá Akureyri en úr Reykjavík.
Í byrjun október létust tveir í bílslysi á Jökuldal fyrir austan. Það tók þyrluna 118 mínútur að koma á staðinn. Mennirnir þrír sem fóru í sjóinn þegar Jökull sökk virðast hafa látist úr kulda vegna þess að þeir þurftu að dvelja í um fimm klukkustundir í sjónum. Þótt vissan sé ekki til staðar er almennt líklegra að menn hefðu lifað ef björgun hefði getað gengið hraðar fyrir sig. Vegna veðurs þurfti að fljúga suður fyrir hálendið og taka eldsneyti og létta þyrluna á Hornafirði við suðausturhornið.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að þá væri ekki rétti tíminn til að ræða málið „á dýptina“. Ef við ræðum þetta ekki í þaula þegar á reynir, hvenær þá?
Dómsmálaráðherrann sagði að þyrlur væru ekki „hilluvara“, en nú virðist blasa við að allir eru samstíga í að klára skrefið sem hefur tekið meira en fjóra áratugi að taka og að það er siðferðislega og röklega ófært að bakka frá því.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















































Athugasemdir