Fréttir af fjársvelti og alls kyns vandræðum danska hersins eru ekki nýjar af nálinni. Um margra ára skeið hafa, nánast með reglulegu millibili, birst fréttir af úreltum og úr sér gengnum tækjum og tólum og ónothæfum búnaði.
Um síðustu aldamót, eftir langan og tímafrekan undirbúning, samdi danski flotinn um smíði tveggja herskipa. Þau voru bæði gerð eftir sömu teikningum, skrokkarnir smíðaðir í Gdansk í Póllandi þar sem vélum og skrúfubúnaði var komið fyrir. Skipin voru síðan dregin til Skagen á Jótlandi þar sem þau voru fullkláruð, reyndar ekki alveg eins og síðar verður getið.
Fyrra skipið var tekið í notkun 2008 og fékk heitið Knud Rasmussen, seinna skipið fékk nafnið Ejnar Mikkelsen og var tekið í notkun árið 2009. Síðar var smíðað eitt skip til viðbótar eftir sömu teikningum, flotinn fékk það árið 2016 og skipið fékk nafnið Lauge Koch.
Mennirnir sem skipin voru nefnd eftir voru þekktir Grænlandsfarar og innan danska flotans eru skipin þrjú kölluð Knud Rasmussen-skipin. Þau eru rúmlega 72 metra löng og 15 metra breið og einkum ætluð til notkunar á norðurslóðum, nöfnin þess vegna passandi.
Furðufréttir um fallbyssur
Hinn 10. janúar árið 2024 birti DR frétt sem segja má að hafi vakið mikla athygli. Hún fjallaði um miðunarbúnað í þremur dönskum herskipum, eða réttara sagt skort á slíkum búnaði. Í fréttinni var greint frá því að herskipin Knud Rasmussen og Ejnar Mikkelsen hefðu aldrei getað notað fallbyssurnar sem höfðu verið í skipunum frá upphafi (árin 2008 og 2009). Ástæðan var að miðunarbúnaður, sem er grundvallaratriði fyrir notkun fallbyssanna, hafði aldrei verið settur í skipin, byssurnar sem sé ónothæfar. „Nema kannski fyrir púðurskot þar sem ekki þarf að miða,“ sögðu dönsku miðlarnir í hæðnistón.
Árið 2013, þegar ákvörðun var tekin um smíði Lauge Koch, var sérstaklega tiltekið að miðunarbúnaður fyrir fallbyssuna skyldi settur í skipið áður en flotinn fengi það afhent árið 2016. Jafnframt var samið um að samtímis skyldi miðunarbúnaður settur í eldri skipin tvö, sérstök fjárveiting fékkst til kaupa á þessum búnaði, keyptur frá sænska Saab.
Árið 2016 mátti lesa í skýrslu varnarmálaráðuneytisins að vinna við að setja miðunarbúnað í Knud Rasmussen og Ejnar Mikkelsen væri í gangi. Orðatiltækið „góðir hlutir gerast hægt“ á sannarlega við um þetta verkefni, því það var ekki fyrr en sumarið 2023 sem miðunarbúnaðurinn var settur í Ejnar Mikkelsen og loks árið 2024 í Knud Rasmussen sem var, eins og áður var nefnt, tekinn í gagnið árið 2008. Þótt skipin séu yngri en margt annað hjá hernum, og sem slík ágæt, geta þau ekki annað þeim verkefnum sem þeim eru ætluð á þeim óvissutímum sem nú eru uppi.
Frederikshavn
Í byrjun síðasta árs náðu fulltrúar flokkanna á danska þinginu samkomulagi um smíði fimm nýrra skipa til notkunar á norðurslóðum. Samkomulagið gerði ráð fyrir að skipin (freigátur) yrðu smíðuð í Danmörku.
Frederikshavn á Jótlandi yrði eins konar miðja þessarar framkvæmdar, skrokkarnir yrðu smíðaðir þar en aðrir hlutar á ýmsum stöðum í landinu og svo fluttir til Frederikshavn þar sem skipunum yrði púslað saman, ef svo mætti að orði komast. Skipasmíðar í Frederikshavn eiga sér langa sögu, á tímabili voru þar 5 skipasmíðastöðvar, sem smíðuðu meðal annars fjölmörg fiskiskip fyrir Íslendinga, en á síðari hluta síðustu aldar dró mjög úr þeirri starfsemi. Síðan skipasmíðar í bænum heyrðu nánast sögunni til voru sum þeirra svæða sem áður tilheyrðu skipasmíðunum tekin til annarra nota.
Íbúar í Frederikshavn glöddust mjög eftir að tilkynnt hafði verið um smíði skipanna fyrir danska flotann, smíði fimm skipa fylgja mikil umsvif og atvinna. Bæjaryfirvöld í bænum samþykktu fyrir nokkrum dögum ýmsar skipulagsbreytingar varðandi þetta stóra verkefni og margs konar undirbúningur hafinn.
Í dönskum fjölmiðlum birtust fregnir af jákvæðum viðbrögðum almennings, sem gladdist yfir því að á ný yrðu smíðuð skip í Danmörku, en fyrr á tíð voru skipasmíðar mikilvæg atvinnugrein í landinu.
Eða ekki Frederikshavn
Hringlandaháttur er yfirskrift þessa pistils. Sú yfirskrift er ekki út í bláinn því þrátt fyrir ákvörðun danska þingsins um að skipin skyldu smíðuð í Danmörku kom fljótlega babb í bátinn. Um miðjan desember í fyrra (sama árið og áðurnefnt samkomulagið um nýju skipin var samþykkt) fór Troels Lund Poulsen, þáverandi varnarmálaráðherra, í heimsókn í Babcock skipasmíðastöðina sem er í skoska smábænum Rosyth.
Skipasmíðastöðin hefur starfað í áratugi og meðal annars smíðað fjölmörg skip fyrir breska sjóherinn, bæði stór og smá. Eftir heimsóknina í Babcock stöðina lýsti Troels Lund því yfir að augljóst væri að Danir gætu ekki, að minnsta kosti ekki núna, smíðað þau fimm skip sem búið var að ákveða. Ráðherrann sagði að því miður byggju Danir ekki yfir því sem til þyrfti, „það er draumsýn að halda að við Danir ráðum við þetta verkefni,“ sagði ráðherrann.
Troels Lund átti fundi með forsvarsmönnum Babcock og eftir þá fundi lýsti ráðherrann því yfir að í sínum huga væri eins konar samvinnuverkefni danska hersins og Babcock æskilegasta leiðin.
Þessar hugmyndir ráðherrans mæltust misjafnlega fyrir, nokkrir þingmenn vildu ekki heyra á það minnst að freigáturnar fimm yrðu smíðaðar annars staðar en í Danmörku. Þótt mikið væri talað um nauðsyn þess að hraða ákvörðunum um freigátusmíðina gerðist fátt. Rifjað var upp að í skýrslu frá varnarmálaráðuneytinu frá árinu 2024 var bent á að Danir væru ekki færir um að smíða herskip, stjórnmálamennirnir höfðu ekki tekið mikið mark á því.
Allt í óvissu
Fyrir skömmu lýsti Alex Ahrendtsen, talsmaður Danska þjóðarflokksins í varnarmálum, yfir miklum efasemdum ,,í freigátumálinu“ eins og hann komst að orði. Hann hafði áður stutt að freigáturnar yrðu smíðaðar í Danmörku. Í viðtali við dagblaðið Berlingske sagði Alex Ahrendtsen að kannski væri best að kaupa eina, tvær eða jafnvel þrjár freigátur frá erlendri skipasmíðastöð, þær væri hægt að fá með skömmum fyrirvara.
Brátt verða liðin tvö ár frá því að danskir þingmenn samþykktu smíði herskipanna fimm. Það eina sem gerst hefur í málinu er að í Frederikshavn er undirbúningur vegna hugsanlegrar skipasmíði hafinn.

Þyrlurnar
Árum saman hafa nánast reglulega birst í dönskum fjölmiðlum fréttir af þyrlusveit danska hersins. Árið 2024 gat danski herinn ekki fullnægt kröfum NATO varðandi flutning á mannskap og hergögnum til þátttöku í stórri heræfingu. Ástæðan var að herinn réði ekki yfir nægilega mörgum þyrlum, í nothæfu ástandi, til að taka þátt í æfingunni og samtímis vera til taks til björgunar- og leitarstarfa á sjó og landi (kallað SAR verkefni).
Þyrlurnar sem notaðar eru við þessi verkefni eru af gerðinni EH101. Herinn á 14 þyrlur af þessari gerð en á undanförnum 5 árum hafa einungis 6 þyrlur verið flughæfar (driftsklar) hverju sinni. Hálfgerðir vandræðagripir, hafa sumir sérfræðingar sagt.
Þyrlurnar voru keyptar skömmu eftir síðustu aldamót og þurfa mikið viðhald. Samkvæmt útreikningum hersins myndi kosta um það bil 2 milljarða króna (37 milljarða íslenskra króna) að koma EH101 flotanum í „toppstand“ eins og komist var að orði í skýrslu hersins. Þeir peningar liggja ekki á lausu hjá hernum.
37.000 milljónir
Áhugi fyrir hollensku leiðinni
Meðal danskra þingmanna er áhugi fyrir að fara sömu leið og Hollendingar, þar er björgunar- og leitardeildin (SAR) á vegum einkafyrirtækis. Hollendingar líta ekki á SAR-verkefnið sem kjarnaverkefni hersins og því valið þessa leið.
Ef Danir veldu sömu leið og Hollendingar þyrfti herinn ekki á jafnmörgum EH101 þyrlum að halda. Ein ástæða þess að Hollendingar fóru þessa leið er sú að herinn hefur skort mannafla og það að fela utanaðkomandi SAR-verkefnið leysir hluta þess. Danski herinn glímir við sama vanda, vantar fleiri hermenn.
Þyrlumálin koma til kasta þingsins á næstu vikum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















































Athugasemdir