Stuttu fyrir dag íslenskrar tungu kom út ný skýrsla um virðiskeðju og vistkerfi bókmennta sem unnin hafði verið að beiðni ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Loga Einarssonar.
Skýrslan er meðal annars hugsuð til að byggja stoðir undir nýja bókmenntastefnu. „Íslenska er örtungumál og markaðurinn fyrir bækur afar lítill“, eins og segir í henni.
Leyfir öðrum greinum að dafna
Í blábyrjun hennar má lesa: „Bókmenntir mynda hornstein íslenskrar menningararfleifðar og eru ein af grunnforsendum þess að íslenskan haldi velli sem tungumál. Þær eru auk þess mikilvægur hluti af íslenskum hugverkaiðnaði, sem er ein af fjórum stoðum íslenskrar atvinnustefnu núverandi ríkisstjórnar.
Greining á virðiskeðju íslenskra bókmennta sýnir að hún er frábrugðin virðiskeðjum margra annarra atvinnugreina að því leyti að hún myndar áhrifaríka hringrás frekar en keðju, því afrakstur höfunda leiðir oft til sköpunar á nýjum bókmenntaverkum. Enn fremur leiðir greiningin í ljós að ritlistin í landinu er oft …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.

























Athugasemdir