Ef auglýsingar auglýstu það sem við raunverulega þyrftum myndum við oftast heyra sömu setninguna: „Ekki kaupa.“ Við þurfum nefnilega að vernda tíma okkar, athygli og fjármuni í stað þess að tvístra því öllu.
Það er sex prósent verðbólga vegna eftirspurnarinnar af einkaneyslunni okkar og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og peningastefnunefndin hans hafa verið að hækka stýrivexti ársfjórðung eftir ársfjórðung til þess að fá okkur til að hætta að kaupa. En „við“ hlustum ekki á hann og alltaf þegar kveikt er á sjónvarpi, útvarpi eða samfélagsmiðlum er okkur sagt – þvert gegn framsýnni leiðsögn Ásgeirs – að eyða meira. „Með þér í liði,“ segja þau svo.
Ef við lifðum í besta mögulega heimi, eins og heimspekingurinn Leibniz lagði til, myndum við heyra það sem við þurfum frekar en það sem aðrir vilja til að framkalla í okkur. Föstudagar yrðu dagarnir þar sem við eyddum ekki krónu. Nóvember væri nó-vember, þegar við segðum nei við freistingum, eða nógvember vegna þess að við hefðum loksins fengið nægju okkar.
Lokkandi spurning Arnars Jónssonar – „Ertu í bílahugleiðingum?“ – myndi breytast í: „Ertu í göngupælingum?“ Þú værir ekki álitin(n) bensínlaus af því að þú værir að labba. „Ég er að labba, labba, labba. Ég er eðlileg,“ segði Saga Garðarsdóttir þá.
Svoleiðis myndum við ná niðurlögum verðbólgunnar. Loksins myndi Ásgeir lækka stýrivextina og Seðlabankinn hætta að reyna að framkalla atvinnuleysi til að kæla hagkerfið. Þannig myndi afborgun af húsnæðislánum heimilanna lækka. Þá hefðum við loksins efni á að kaupa. Við gætum farið í „kauphlaup“, slíkar væru allsnægtirnar. Allt myndi tryllast. Við fengjum „sprengitilboð“ frá búðunum.
Ef við tökum nóg-vember alvarlega getum við lagt drög að vel heppnuðum vesenber og spanúar til að hindra þessa sefandi hugarró sem ógnar stöðugum framgangi okkar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir